Ætlar ekki sömu leið og Óskar Hrafn: „Væri óskandi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 26. september 2026 09:00 Arnar hafði gaman að spurningunni um hans gamla keppinaut. Vísir/Sýn Sport Arnar Gunnlaugsson leitar rétta jafnvægisins milli sterks varnarleiks og sóknarleiks er Ísland mætir Eistlandi í Þjóðadeild karla í fótbolta í dag.
Fyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson missti af öllum leikjum Íslands í undankeppni HM á síðasta ári. Andri Lucas Guðjohnsen var öflugur í hans fjarveru sem og Albert Guðmundsson en alla fjóra má flokka sem framherja sem spila miðsvæðis, fremur en á köntunum. Klippa: Hausverkur að velja liðið, krafa á sigur og álagi dreift Er hausverkur fyrir Arnar að koma þeim öllum fyrir í liðinu? „Þetta er sem betur fer orðið þannig í þessum nútímafótbolta að varnarleikur og sóknarleikur er bara tvennt ólíkt þannig að það er hægt að bregða sér í allra kvikinda líki þegar við erum með boltann,“ segir Arnar og bætir við: „En svo þurfa menn kannski að sætta sig við að verjast kannski ekki alveg beint í þeirra leikstöðu og ef við ætlum að koma fyrir leikmönnum sem eru nefndir, Orra, Andra Lucas, með Alberti, með Hákoni (Arnari Haraldssyni) og við erum að spila kannski ákveðið leikkerfi, segjum bara 4-4-2, að þá er augljóst mál að sumir þurfa kannski að verjast í kannski ekki beinni uppáhaldsleikstöðu,“ „En um leið og við fáum boltann þá eiga þeir að hugsa um það. Hákon hugsar sem tía. Albert á að hugsa sem tía og Andri Lucas er nía og Orri sem nía. Þannig munum við kannski fá það besta út úr þeim af því við viljum hafa þessa stráka í sama liði en þeir þurfa svo sannarlega að læra inn á það og þeir hafa gert það mjög vel hingað til að sætta sig við að spila sterka varnarleiki í kannski ekki alveg sinni bestu stöðu,“ segir Arnar. Hvernig leysir þú fámenna varnarlínu og auðugan garð sóknarmanna? Varnarlínan er fámenn fyrir þetta verkefni líkt og um hefur verið rætt. Arnar er þá spurður léttúðlega að því hvort hann vilji ekki taka blaðsíðu úr bók föður landsliðsfyrirliðans og hans gamla keppinautar í toppbaráttu Bestu deildarinnar, Óskars Hrafns Þorvaldssonar. Arnar Gunnlaugsson og Óskar Hrafn Þorvaldsson eru ekki keppinautar í dag. Arnar stýrir íslenska landsliðinu, með son Óskars sem fyrirliða, og Óskar stýrir KR í Bestu deildinni.Samsett/Getty/Diego KR-ingar hafa vakið athygli í Bestu deildinni í sumar fyrir að spila löngum köflum með einn varnarmann í öftustu línu þegar liðið er með boltann og ýta rest fram. „Já, það væri óskandi,“ segir Arnar og hlær. „Ef það væri væri hægt í landsliðsfótbolta því ég hef mjög gaman af svoleiðis fótbolta sko. En við þurfum að vera kannski klókir og bera virðingu því að á þessu stigi þá er alltaf einn, tveir – og það fer eftir því hversu gott liðið er – sem geta meitt okkur með sínum hæfileikum,“ „Vonandi verður leikmyndin svipuð á móti Aserbaídsjan þar sem við vorum töluvert meira með boltann en þess háttar,“ segir Arnar og vísar til 5-0 sigurs Íslands á Aserum í undankeppni HM á Laugardalsvelli í fyrra. Eistarnir þéttir Hann gerir sér þó grein fyrir að Eistland sé skeinuhætt lið, þó það sé lægra skrifað en Ísland. „Þeir gerðu jafntefli við Úkraínu, Norðmönnum gekk mjög illa að skapa sér færi á móti Eistlandi, alveg langa kafla í þeim leikjum þannig að þetta verður krefjandi og þetta verður kannski þolinmæðisverk líka að brjóta niður lágvörn,“ „Og það svo sem gerist ekkert oft í íslensku landsliði að þurfa að glíma mikið við lágvörn. Vanalega erum við lágvarnarliðið. En við erum búnir að vinna hart að því síðustu 18 mánuði að geta stýrt og stjórnað þessum leikjum og við sýndum það einmitt í Aserbaídsjan að það er vel mögulegt. „Þannig að ég er bara fyrst og fremst rosa spenntur að sjá að við getum haldið áfram þar sem frá var horfið. Það var sterk frammistaða á móti Japan, sterk frammistaða á móti Argentínu, langa kafla í þeim leik, og við tökum það inn í leikinn á morgun, ekki vera að byrja aftur á byrjunarreit eins og við gerðum á móti Kósovó heldur við erum að sýna fram á það með hverjum glugganum að við erum að stíga eitthvað skref fram á við,“ segir Arnar. Leikur Íslands og Eistlands er klukkan 16:00 á Laugardalsvelli í dag. Hann verður sýndur beint á Sýn Sport í opinni dagskrá.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira