Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar 26. september 2026 08:01 Móðir náttúra ákveður kyn og blöndu þeirra með fjölbreyttum hætti. Allt frá genum, kynkyrtlum, kynhormónum og næmni kynfruma fyrir þeim. Þetta er allt saman saman erða- og líffræði 101 - og þá eru ótalin upplifun fólks af sínu kyni sem vísindin sýna okkur að getur líka haft líffræðilegar rætur. Hverjum er ekki sama spyrja sumir? Greinilega sumum - því það þýðir breytingar að samþykkja að náttúran skapaði mannskepnuna öðruvísi en mannskepnan skapaði sitt samfélag - og það er óþægilegt fyrir suma. En við höfum gert það milljón sinnum í sögu okkar sem mannkyn: Að stunda kynlíf utan hjónabands fylgdi dauðadómur. Skilnaður var lengi vel ólöglegur. Og öll kynhneigð önnur en gagnkynhneigð var greind sem geðröskun. Okkur er að takast þetta líka núna með aukinni vernda á velferð intersex og trans barna - og núna eins og áður þá eru mannúð, vísindi og málefnalegt samtal leiðin framhjá fordómum og til að róa hræðsluna sem fóðrar þá. Til að vernda börn þá þurfum við fullorðna fólkið að vanda okkur. Lög um kynrænt sjálfræði sem voru samþykkt 2019 með öllum greiddum atkvæðum á Alþingi, bönnuðu loksins „óafturkræf læknisfræðileg inngrip“ á börnum, þar til að þau hafa aldur og þroska til að koma að þeirri ákvörðun. Lögin þýða aðekkert barn, enginn undir átján ára aldri, fer í kynleiðréttingaraðgerð hér á landi. Og sjálfræðið til að koma að ákvörðunum um hormóna breytingar á eigin líkama fá aðeins 16 ára börn og eldri, og þá aðeins eftir ítarlega upplýsingagjöf um mögulegar afleiðingar, samráð við foreldra og að teymi heilbrigðisstarfsfólks sé sammála að það sé barninu fyrir bestu. Lögin voru vandlega unnin í samræmi við teymi heilbrigðisstarfsfólks sem segir: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.“ Og lögin voru unnin í samráði við og með stuðningi frá Umboðsmanni Barna, Barnaverndarstofu og Barnaheill, frá Landlækni og Barna- og unglingageðdeild Landspítalans, frá réttindasamtökum Intersex, Trans og Heildarsamtökum hinsegin fólks, ásamt Prestastefnu Þjóðkirkjunnar og Siðfræðistofnun Háskóla Íslands. Þau sem hafa hér á landi tileinkað líf sitt til að vernda réttindi barna, sálfræðilega líðan þeirra og líkamlega heilsu eru samstíga hinsegin samfélaginu, sálfræðingum, siðfræðingum og prestum, að lögin séu mikil réttarbót fyrir velferð intersex og trans barna. Börn eiga því skilið að þingmenn sem telja sig vita betur um: ‘heilsu þeirra og velferð’ - en þau sjálf með foreldrum sínum og heilbrigðisstarfsfólki í samræmi við gildandi lög - að þeir að lágmarki vandi sig í umræðu sem varðar: ‘heilsu þeirra og velferð.’ Og börn eiga það líka skilið að þessir þingmenn leggi það þá á sig að kynna sér nýju lögin - til að leggja svo fram vandaðar og vel rökstuddar breytingar á þeim - ef þeim er alvara um að lögin verndi ekki nógu vel velferð þeirra. Og börnin okkar eiga það svo sannarlega skilið að við fullorðna fólkið minnum hvert annað á að vanda umræðuna þegar það kemur að velferð þeirra. - Um það getum við flest verið samstíga. Höfundur er fyrrum Alþingismaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Þór Ólafsson Mest lesið Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Halldór 22.10.26 Halldór Baldursson Halldór Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar