Viðskipti innlent

Loka Krambúðinni á Húsa­vík

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Svanur Valgeirsson er framkvæmdastjóri Krambúðanna, Spar og 10-11.
Svanur Valgeirsson er framkvæmdastjóri Krambúðanna, Spar og 10-11. Samsett

Krambúðinni á Húsavík verður lokað í lok þessa árs. Framkvæmdastjóri verslana Samkaupa segir alltaf erfitt að taka ákvarðanir um að segja upp starfsfólki en reksturinn hafi reynst erfiður.

Svanur Valgeirsson, framkvæmdastjóri Krambúðanna, 10-11 og Spar, segir húsaleigusamninginn renna út í febrúar og að fyrirtækið sé ekki tilbúið að skuldbinda sig til næstu fimm til tíu ára, enda hafi reksturinn reynst erfiður.

Í byrjun árs hafi staðið til að breyta öllum verslunum Krambúðarinnar í verslanirnar Spar, „með það í huga að hlutirnir gætu breyst.“ 

Á Húsavík er einnig Nettó-verslun en bæði Krambúðin og Nettó eru í eigu Samkaupa. Svanur segir reksturinn meðal annars hafa verið erfiðan vegna návígis verslananna tveggja.

„Reksturinn hefur verið krefjandi með aðra búð innan Samkaupa í næsta nágrenni. Við mátum það svo að það væri ekki forsvaranlegt og tókum ákvörðun um að hlúa betur að Nettó,“ segir Svanur.

Alls starfi um tíu manns í versluninni, í mismiklu starfshlutfalli og með mislangan starfsaldur. Því verður sagt upp en óljóst er hvort því verði boðið starf í öðrum verslunum Samkaupa og verið sé að meta stöðuna.

„Eins erfitt og það er að taka svona ákvörðun um að segja upp fólki var hún nauðsynleg,“ segir Svanur. 

Lengja mögulega opnunartíma Nettó

Mögulega verði einhverjum starfsmönnum Krambúðarinnar boðið starf hjá Nettó en allt sé enn til skoðunar. Þar að auki sé til skoðunar að lengja opnunartíma Nettó á móti og þá gæti verið þörf á fleira starfsfólki. Opið hafi verið í Krambúðinni að jafnaði til klukkan ellefu á kvöldin en í Nettó til klukkan sjö.

Krambúðirnar eru þrettán talsins. Þær eru staðsettar á Akureyri, Flúðum, Hólmavík, Húsavík, Laugarvatni, Selfossi, í Keflavík, Reykjahlíð, Búðardal og fjórar á höfuðborgarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×