Costa var hetja Portúgal og Klopp enn án sigurs Andri Broddason skrifar 27. september 2026 20:52 Jurgen Klopp hefur verið þjálfari þýska landsliðsins í tvo leiki og ekki enn unnið. Alexander Hassenstein/Getty Images Tveir leikir fóru fram í A-deild Þjóðardeildarinnar í kvöld þar sem Noregur tók á móti Portúgal og Þýskaland tók á móti Grikklandi. Portúgal náði að sækja 2-1 sigur í Noregi og Grikkland vann óvænt í Þýskalandi 1-0.
Leikur Noregs og Portúgals var gríðarlega jafn en gestirnir skoruðu fyrsta mark leiksins. Joao Felix nýtti góða sendingu frá Pedro Neto og átti Orjand Nyland í marki Noregs lítinn séns á að verja skotið. Staðan var 1-0 í hálfleik en það má nánast alltaf gera ráð fyrir að Erling Haaland skori í öllum leikjum sem hann spilar. Leikurinn í kvöld var ekkert öðruvísi þar sem Haaland fékk boltann til sín eftir að Martin Ödegaard gaf háa sendingu í teiginn úr aukaspyrnu. Jöfnunarmark Noregs var verðskuldað en Nyland gerði mistök í uppspili Noregs og gaf nánast beint á Concalo Ramos sem þakkaði fyrir sig og skoraði auðveldlega í autt markið. Nokkrum mínútum síðar gerði Nyland önnur mistök og missti af boltanum en eftir skoðun myndbandsdómgæslu var markaskorarinn Ramos rangstæður og slapp Nyland því með skrekkinn. Þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum komst Noregur í dauðafæri á að jafna metin þegar Antonio Nusa gaf hælsendingu á Andreas Schelderup sem var í dauðafæri. Diogo Costa var þó á tánum í marki Portúgals og náði að verja skotið frábærlega. Þetta endaði á því að vera síðasta færi leiksins og náði Portúgal að ná 2-1 sigri í Noregi. Klopp þarf að bíða lengur eftir fyrsta sigrinum Þýskaland tók á móti Grikklandi og strax frá byrjun leit út fyrir að Þjóðverjar myndu valta yfir gestina. Þýskaland hélt mun meira í boltann en ekki mörg færi sköpuðust og var staðan markalaust í hálfleik. Í seinni hálfleik héldu yfirburðir Þýskalands áfram en liðið átti erfitt með að koma sér í hættuleg færi. Ísinn brotnaði loksins á 74. mínútu en þvert gegn gangi leiksins var það Grikkland sem skoraði fyrsta mark leiksins. Dimitrios Kourbelis fékk góðan tíma rétt fyrir utan teig Þýskalands eftir frábæran undirbúning frá Christos Tzolis. Hann skaut í varnarmann Þýskalands sem truflaði Alexander Nubel í marki Þýskalands og kom Grikkjum yfir. Þjóðverjar gerðu breytingar til að reyna að koma fyrir jöfnunarmarki undir lok leiksins en það hafðist ekki og þurfti liðið að sætta sig við 1-0 tap gegn Grikklandi. Jurgen Klopp er því enn sigurlaus í fyrstu tveim leikjum sínum sem þjálfari þýska landsliðsins.
Fótbolti Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira