Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ Sindri Sverrisson skrifar 28. september 2026 08:02 Hákon Rafn Valdimarsson var magnaður í marki Íslands gegn Eistlandi á laugardaginn. vísir/Anton Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason dásömuðu markvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson og sögðu hann langbesta leikmann Íslands í 1-1 jafnteflinu við Eistland í Þjóðadeildinni á laugardag.
Bjarni Guðjónsson og Kári Árnason dásömuðu markvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson og sögðu hann langbesta leikmann Íslands í 1-1 jafnteflinu við Eistland í Þjóðadeildinni á laugardag. Hákon sá við dauðafæri Eistlendinga í fyrri hálfleiknum og varði aftur frábærlega í seinni hálfleik sem og þegar hann varði vítaspyrnu gestanna. „Það væri ekkert hægt að segja við því ef það kæmu þrjú mörk upp úr þessum færum. Á meðan erum við ekki í neinum opnum færum,“ sagði Bjarni en umræðuna og frammistöðu Hákonar má sjá hér að neðan. Klippa: Hákon maður leiksins með magnaðar vörslur Ekki var að sjá að það bitnaði á Hákoni að hafa ekkert spilað með liði sínu Brentford á leiktíðinni og var hann afar beittur í öllum sínum aðgerðum. „Hann fær ekkert mikið að gera en þetta eru þó þrjú dauðafæri og hann ver þau öll,“ sagði Kári. „Það er ekkert að gera hjá honum en svo koma þessi atvik og hann ver þau öll. Svo greip hann inn í, kom út og kýldi boltann vel út fyrir teiginn og greip boltann líka tvisvar, þrisvar og kom strax í gang skyndisókn með frábærum köstum. Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn á vellinum,“ sagði Bjarni. Elías Rafn Ólafsson var aðalmarkvörður Íslands í undankeppni HM síðasta haust og hefði eflaust staðið í markinu á laugardaginn ef hann hefði ekki meiðst fyrir viku. Nú er orðið ljóst að Elías verður lengi frá, vegna aðgerðar á nýra, og miðað við frammistöðu Hákonar á laugardag verður erfitt að velta honum úr sessi. „Að einhverju leyti kom það mér á óvart þegar hann missti stöðuna. Ekki út af því hvernig gengið hefur með markmannsstöðuna hingað til. En núna sýnir hann að þetta verður ærið verkefni þegar aftur verður keppt um stöðuna á milli þeirra tveggja. Hann var frábær,“ sagði Bjarni.
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Tengdar fréttir Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Kári Árnason, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður Íslands í fótbolta gagnrýndi orkustigið í leik íslenska landsliðsins í jafntefli gegn Eistlandi í gær. Hann spyr sig hvers vegna menn sína ekki jafn mikinn anda og baráttu eins og má sjá í Instagram myndböndum frá æfingu liðsins. 27. september 2026 16:48 Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Venezia á Ítalíu, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðið sökum meiðsla sem Albert Guðmundsson varð fyrir í leik liðsins gegn Eistlandi í gær. 27. september 2026 10:43 Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Albert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í yfirstandandi verkefni liðsins í Þjóðadeild UEFA vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins í gær. Íslenska landsliðið heldur út til Lúxemborgar í dag. 27. september 2026 09:11 Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Ísland mætti Eistlandi í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar í gær og endaði leikurinn með 1-1 jafntefli. Það var fínasta mæting á Laugardalsvöll þar sem Anton Brink var með myndavélina á lofti. 27. september 2026 08:01 Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Íslenska karlalandsliðið mætti Eistlandi í fyrstu umferð C-deild Þjóðardeildarinnar í dag. Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í dag. 26. september 2026 18:23 Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Bað leikmenn Como um að „slaka á“ í lokin gegn Man. United Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira
Hvar er orkan sem sást á Instagram? „Þetta er flatt“ Kári Árnason, fyrrverandi atvinnu- og landsliðsmaður Íslands í fótbolta gagnrýndi orkustigið í leik íslenska landsliðsins í jafntefli gegn Eistlandi í gær. Hann spyr sig hvers vegna menn sína ekki jafn mikinn anda og baráttu eins og má sjá í Instagram myndböndum frá æfingu liðsins. 27. september 2026 16:48
Þórir Jóhann kallaður inn í landsliðið Þórir Jóhann Helgason, leikmaður Venezia á Ítalíu, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðið sökum meiðsla sem Albert Guðmundsson varð fyrir í leik liðsins gegn Eistlandi í gær. 27. september 2026 10:43
Albert ekki meira með íslenska landsliðinu Albert Guðmundsson verður ekki meira með íslenska landsliðinu í yfirstandandi verkefni liðsins í Þjóðadeild UEFA vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik liðsins í gær. Íslenska landsliðið heldur út til Lúxemborgar í dag. 27. september 2026 09:11
Myndaveisla: Ísland gerði svekkjandi jafntefli við Eistland Ísland mætti Eistlandi í riðlakeppni Þjóðadeildarinnar í gær og endaði leikurinn með 1-1 jafntefli. Það var fínasta mæting á Laugardalsvöll þar sem Anton Brink var með myndavélina á lofti. 27. september 2026 08:01
Einkunnir Íslands: Vonbrigðarbyrjun í Þjóðardeildinni Íslenska karlalandsliðið mætti Eistlandi í fyrstu umferð C-deild Þjóðardeildarinnar í dag. Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í dag. 26. september 2026 18:23