„Frá morgunmat fram á 90. mínútu“ Valur Páll Eiríksson skrifar 29. september 2026 20:56 Landsliðsfyrirliðinn reimaði á sig markaskóna í kvöld Mynd: KSÍ „Mér líður vel. Ekki nógu vel samt. Það eru tveir leikir eftir í þessum glugga. Við erum ennþá hungraðir,“ segir landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir 3-0 sigur Íslands á Lúxemborg í Þjóðadeild karla ytra í kvöld. „
Þetta gefur okkur smjörþefinn af einhverju betra. Þetta var markmiðið okkar komandi inn í leikinn og við vissum að ef við myndum vinna værum við á toppnum, það var hugarfarið komandi inn í leikinn, að vinna og fara á toppinn,“ segir Orri Steinn enn fremur eftir leik við Stefán Árna Pálsson í Lúxemborg. Klippa: Viðtal við Orra Stein eftir sigur gegn Lúxemborg Orri Steinn átti stóran þátt í fyrsta marki Íslands sem braut ísinn. Orri Steinn skóp markið að stórum hluta sjálfur þegar hann steig varnarmann Lúxemborgar út og sprengdi vörn liðsins upp. Hann tók á rás og átti hárfína sendingu á Andra Lucas Guðjohnsen sem afgreiddi boltann laglega í markið af stuttu færi. Orri Steinn var spurður hvort þetta mark hafi slakað á strákunum og gert að verkum að þeir hafi haft svo mikla yfirburði í kjölfarið. „Mín upplifun var öðruvísi. Ég upplifði allan daginn sem frábært orkustig frá öllum strákunum, hausinn var hárrétt skrúfaður á. Það var enginn að dvelja við leikinn á laugardaginn. Ég upplifði alla vel gíraða í leikinn, allt frá morgunmat fram á 90. mínútu. Þannig að ég er mjög stoltur af strákunum og ánægður með frammistöðuna,“ segir Orri Steinn. Orri Steinn skoraði þá sjálfur annað mark leiksins og eftir stoðsendingu frá Andra Lucasi. Andri átti frábæra hælsendingu og Orri Steinn fékk langan tíma til að hlaupa að marki og athafna sig áður en hann lagði boltann í netið. Hann var þó ekkert stressaður, tíminn hafi verið fljótari að líða fyrir hann en þá sem horfðu á. „Nei, nei. Þetta gerist allt mjög hratt í augnablikinu fyrir mig. Þetta er bara mitt eðli að vera fyrir framan markið. Ég vissi að Andri gæti komið þessu fyrir markið og auðviað er bara geggjað að spila með honum,“ segir Orri Steinn. Mikil reynsla kom inn í íslenska liðið í dag með innkomu Gylfa Þórs Sigurðssonar. Það munaði um hann. „Það er bara geggjað. Ég heyrði í honum allan leikinn öskrandi á okkur. Þetta er standardinn, við þurfum að horfa til hans. Við þurfum að horfa á leikinn í dag og þetta er standardinn sem við þurfum að setja í hverjum einasta leik og ekki líta til baka. Ef við getum spilað með þessa orku og þessa einbeitingu, þá getum við gert almennilega hluti,“ segir Orri Steinn. Vonast er þá til að Íslendingar fjölmenni á næsta leik við Búlgaríu á Laugardalsvelli á laugardag. „Það væri best. Íslenska þjóðin veit hvaða þýðingu það hefur fyrir okkur að vera með fullan völl. Við elskum að fá fólk á völlinn og heyra í þeim. Við hvetjum alla til að koma á leikinn og við ætlum svo sannarlega að reyna að fylgja þessari frammistöðu eftir.“
Landslið karla í fótbolta Þjóðadeild karla í fótbolta Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira