Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sindri Sverrisson skrifar 30. september 2026 09:30 Björk hélt glæsilega sýningu í lok síðustu vorannar. Að óbreyttu verða engir þjálfarar hjá félaginu á næstu vorönn en unnið er að lausn. @fimleikafelagidbjork Rekstrarvandi fimleikafélagsins Bjarkar, sem sagt hefur upp öllum þjálfurum 18 ára og eldri, var til umræðu á fundi bæjarstjórnar Hafnarfjarðar í gær. Bæjarstjóri segir áherslu lagða á að standa vörð um starfið á meðan fjárhagsstaðan sé skoðuð.
Eins og fram hefur komið neyddust forráðamenn Bjarkar til að segja þjálfurum sínum upp í fyrrakvöld og munu ráðningarsamningar þeirra því renna út um áramótin. Æfingar eiga þó að halda áfram samkvæmt stundatöflu á þessari önn. Yfir eitt þúsund iðkendur æfa hjá Björk og er um að ræða það félag sem þjónustar flestar íþróttastelpur í Hafnarfirði. „Galin staða sem upp er komin hjá Björk!“ skrifaði Hafnfirðingurinn og tónlistarmaðurinn Friðrik Dór Jónsson á Facebook í gær. Geti sýnt að þau séu ekki haldin sama áhugaleysi gagnvart stærstu kvennaíþrótt bæjarins „Áralangt áhugaleysi og hægagangur Hafnarfjarðarbæjar hvað varðar rekstrar- og þjónustusamninga við félagið hefur orðið til þess að 1.100 iðkendur sitja eftir í algjörri óvissu. Staðan er grafalvarleg og ég trúi ekki öðru en að bærinn sýni snör viðbrögð og taki þetta mál fyrir á bæjarstjórnarfundi í dag. Björk er frábært félag með frábært fólk innanborðs og þar eiga börn, ekki síst stúlkur, á öllum aldri öruggt og heilbrigt athvarf. Hér er dauðafæri fyrir nýjan meirihluta að sýna í verki að þau séu ekki haldin sama áhuga- og andvaraleysi gagnvart stærstu kvennaíþrótt bæjarins og forverar þeirra með því að ganga beint í málið og eyða óvissunni strax,“ skrifaði Friðrik. Segir samninginn við Björk áþekkan samningum við önnur félög Friðriki varð að ósk sinni að því leyti að fjallað var um málefni Bjarkar á bæjarstjórnarfundi í gær þar sem Valdimar Víðisson, fulltrúi Framsóknar, óskaði eftir svörum meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Samfylkingar um stöðuna. Bæjarstjórinn Þórður Þórarinsson tók þá til máls og sagði meðal annars: „Bærinn hefur boðið félaginu rekstrarráðgjöf til að ná aftur rekstrarhæfni. Bærinn hefur jafnframt í nokkurn tíma veitt Björkunum umfangsmikla aðstoð og ráðgjöf, og fyrirgreiðslu. Hafnarfjarðarbær á húsnæðið sem Bjarkirnar starfa í og reka og bærinn styrkir jafnframt félagið með þjónustusamningi sem miðast við fjölda iðkenda. Samningurinn er áþekkur öðrum samningum við íþróttafélög í Hafnarfirði. Björk er þriðja stærsta íþróttafélag Hafnarfjarðar og það félag sem flestar stúlkur í bænum æfa hjá. Bærinn leggur áherslu á að standa vörð um mikilvægt starf fyrir börn og ungmenni á meðan fjárhagsstaðan er skoðuð.“ Eigi og muni standa vörð um öflugt starf Bjarkar Kristín Thoroddsen, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs, sagði jafnframt að lögð yrði áhersla á að standa vörð um þá rúmlega þúsund iðkendur, bæði börn, ungmenni og eldra afreksfólk, sem Björk sinnir. „Það er vinna í gangi með félaginu og hefur verið, og mun ég sem formaður fræðsluráðs fylgja því verkefni fast eftir. Við eigum og munum standa vörð um það öfluga starf sem hefur verið byggt upp hjá Björkunum og gera það sem í okkar valdi stendur til að tryggja að ekki verði rof á æfingum eða starfsemi þess,“ sagði Kristín.
Fimleikar Hafnarfjörður Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Rúnar Ingi um bannið hans Veigars Páls: „Ég er bara niðurbrotinn sem þjálfarinn hans“ „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Matthías hættur hjá Val Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Ömurleg menning hjá Man. Utd Sjá meira