Sport

Dag­skráin í dag: Enginn Ronaldo í Dan­mörku

Andri Broddason skrifar
Cristiano Ronaldo verður ekki meira með Portúgal í þessum glugga.
Cristiano Ronaldo verður ekki meira með Portúgal í þessum glugga. Torbjorn Tande/Getty Images

Tveir leikir í Þjóðadeild karla í fótbolta fara fram í kvöld og DP World-mótaröðin heldur áfram göngu sinni. Svo er stór leikur í 1. deildinni í körfubolta.

Landsleikjahléð heldur áfram og eru tveir leikir á dagskrá á sportrásum Sýnar. Í D-deild Þjóðadeildarinnar tekur Aserbaísjan á móti Lichtenstein í hörkuleik. Leikurinn er sýndur á Sýn Sport Viaplay klukkan 15:50.

Í A-deild Þjóðadeildarinnar er stór leikur á dagskrá þar sem Danmörk tekur á móti Portúgal. Enginn Cristiano Ronaldo verður með Portúgal í leiknum eftir að hann fór á fund með þjálfara liðsins og forseta portúgalska knattspyrnusambandsins. Þrátt fyrir það er Portúgal með sterkan hóp og getur fólk búist við spennandi leik. Leikurinn hefst klukkan 18:35 og er einnig sýndur á Sýn Sport Viaplay.

Fyrsti hringur Alfred Dunhill Links Championship-mótsins á DP World-mótaröðinni í golfi hefst í dag. Leikið verður á Carnoustie Links-vellinum sem er staðsettur í Skotlandi og er völlurinn gríðarlega fallegur og erfiður. Útsending frá mótinu hefst klukkan 11:00 á Sýn Sport 4.

1. deild karla í körfubolta er að hefja göngu sína og þar tekur Skallagrímur á móti KV. Skallagrímur er með markmið að koma sér aftur upp í Bónus-deild karla en ekki er auðveldur leikur fyrir höndum. KV er búið að sækja í sig veðrið síðustu ár og hefur náð frábæru gengi. Leikurinn verður sýndur klukkan 19:05 á KKÍTV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×