Litlu finnsku uglurnar slá í gegn Sindri Sverrisson skrifar 1. október 2026 10:01 Miska Ylitolva skoraði í sigrinum frækna gegn Spáni. Getty/Omar Arnau Það eru ekki bara íslensku strákarnir í U21-landsliðinu í fótbolta sem hafa verið að gera frábæra hluti að undanförnu því kollegar þeirra í Finnlandi unnu stjörnum prýtt lið Spánar og eru nálægt því að komast á EM.
Mikil eftirvænting ríkti í Finnlandi fyrir leik U21-liðsins, sem kallast „Litlu uglurnar“, við Spánverja. Gestirnir voru með í sínum röðum leikmenn á borð við Barcelona-manninn Marc Bernal, þá Jacobo Ramón og Jesús Rodríguez úr Como og Gonzalo García úr Fulham. Uppselt var á leikinn og áhorfendamet slegið þar sem yfir 7.000 áhorfendur sáu finnsku strákana vinna frábæran 2-1 sigur í Tampere í síðustu viku. Otto Ruoppi, leikmaður Mainz í Þýskalandi, og Miska Ylitolva sem spilar fyrir Kalmar í Svíþjóð, skoruðu mörk Finna. Finnarnir fylgdu svo sigrinum eftir með því að vinna 2-0 útisigur gegn Rúmeníu í gær. Þetta þýðir að Finnland er efst í sínum riðli með 22 stig fyrir lokaleikinn við Kósovó. Spánn er með 21 stig en á tvo leiki eftir og getur því enn unnið riðilinn. Sigurliðið kemst beint á EM en ef Finnar vinna Kósovó gætu þeir komist beint á EM sem liðið í 2. sæti með bestan árangur. Leikið er í níu undanriðlum og kemst eitt lið með bestan árangur í 2. sæti beint á EM en hin átta fara í umspil um fjögur laus sæti. Ísland er í baráttunni um sæti í umspili eftir að hafa unnið stórsigur gegn Sviss og gert jafntefli við Frakkland. Liðið þarf nú að vinna Færeyjar í Þórshöfn í lokaleik sínum á þriðjudaginn og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland á útivelli á sama tíma.
Fótbolti Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta Körfubolti Fleiri fréttir Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Sjá meira