Fótbolti

Sjáðu mörk Orra gegn Búlgaríu

Sindri Sverrisson skrifar
Orri Steinn Óskarsson var í stuði gegn Búlgaríu í dag.
Orri Steinn Óskarsson var í stuði gegn Búlgaríu í dag. vísir/Anton

Orri Steinn Óskarsson er í ham í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli í dag. Mörkin úr leiknum má sjá á Vísi.

Orri kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik þegar hann kláraði færið sitt afar vel eftir frábæran undirbúning æskuvinanna Hákons Arnars Haraldssonar og Ísaks Bergmanns Jóhannessonar.

Í seinni hálfleiknum, á 59. mínútu, bætti Orri við sínu öðru marki og kom Íslandi í 2-0 með skoti af stuttu færi eftir sendingu Mikael Anderson af hægri kantinum.

Þegar þetta er skrifað er leiknum ekki lokið en Ísland var 2-0 yfir þegar korter var til leiksloka.


Tengdar fréttir

Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra?

Hér fer fram textalýsing frá leik Íslands og Búlgaríu í þriðju umferð í riðlakeppni Þjóðadeildar karla í fótbolta. Flautað verður til leiks á Laugardalsvelli klukkan 16:00. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport.

„Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“

„Tja, það er fjölbreytni í leiknum…“ sagði Bjarni Guðjónsson á Sýn Sport í hálfleik, ekkert sérstaklega hrifinn af frammistöðu manna í fyrri hálfleik í leik Íslands við Búlgaríu í Þjóðadeildinni í fótbolta á Laugardalsvelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×