Fótbolti

„Eistar eru með upp­skriftina gegn Ís­landi“

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Eistar réðu vel við Íslendinga á Laugardalsvelli á dögunum.
Eistar réðu vel við Íslendinga á Laugardalsvelli á dögunum. vísir/Anton

Kári Árnason, sérfræðingur Sýnar Sports, hefur áhyggjur af leiknum gegn Eistum eftir helgi enda hafi Eistar sýnt að þeir kunni að spila gegn Íslandi.

„Arnar er þokkalega sáttur eftir þessa leiki og frábært að fá tvo sigurleiki í röð,“ sagði Kári um líðan Arnars landsliðsþjálfara í uppgjöri Sýnar Sports eftir leikinn.

Klippa: Úrslitaleikur gegn Eistum

„Hins vegar erum við að fara í úrslitaleik við Eista og þeir eru pínu með uppskriftina gegn okkur. Við vorum í bullandi veseni með fimm manna lágvörnina þeirra. Við eigum erfitt með að koma boltanum á milli varnar og miðju gegn þeim ólíkt því sem var gegn Lúxemborg og Búlgaríu í dag.

„Þau lið komu inn í leikinn á vitlausum forsendum. Héldu að þau væru betri en við sem þau eru svo sannarlega ekki. Þetta var illa uppsett miðað við getu hjá þeim báðum.“

Ísland sækir Eista heim næsta þriðjudag. Leikurinn verður í beinni á Sýn Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×