Landsvirkjun ætti að fjárfesta í íslensku reikniafli Sigvaldi Einarsson skrifar 7. október 2026 13:01 Í síðustu viku birti bandaríska hagstofan (Census Bureau) byggingartölur fyrir ágúst. Framkvæmdir við gagnaver mældust tæplega 85 milljarðar dollara á ársgrundvelli. Það er met og 73 prósentum meira en fyrir ári. Á sama tíma drógust aðrar atvinnubyggingar einkaaðila saman um tæp sex prósent og verksmiðjubyggingar um tæpan fimmtung. Og þetta eru aðeins húsin. Tölvurnar inni í þeim eru ekki taldar með. Svona tölur segja okkur lítið fyrr en þær eru færðar á íslenskan mælikvarða. Bandaríkjamenn eru um 340 milljónir og við tæplega 400 þúsund. Deilum því með þúsund, og er þá varlega farið. Þá jafngildir þetta því að hér væri byggt undir gagnaver fyrir um 85 milljónir dollara á ári, eða rúma tíu milljarða króna. Á hverju ári, og aðeins í steypu og stál. Það væri of einfalt að kenna gervigreindinni einni um samdráttinn annars staðar, háir vextir skipta þar líka máli. En tölurnar sýna hvert fjármagnið leitar. Reikniafl (compute), vélaraflið sem býr til svör gervigreindarinnar, er að verða ein eftirsóttasta auðlind heims. Við Íslendingar erum vanir að líta á raforkuna sem þjóðarinnviði. Spurningin er hvort við ætlum aðeins að selja rafmagn undir erlend gagnaver eða breyta sjálf hluta orkunnar í reikniafl. Ég skrifaði hér í júlí að þjóðarsjóðurinn okkar héti Landsvirkjun. Nú legg ég til fyrsta skrefið, með tölum. Rétt er að segja strax frá mínum hagsmunum. Alvitur keyrir opin mállíkön (language models) á eigin vélum og fyrirtæki eins og mitt yrðu meðal notenda að innlendu reikniafli. Lesandinn á að vita það áður en lengra er haldið. Ofurtölva fyrir innan við milljarð Nýjasta kynslóð NVIDIA heitir Vera Rubin og er komin í framleiðslu. Fullbúið kerfi, Vera Rubin NVL72, er ekki venjulegur netþjónn heldur heil gervigreindarofurtölva í einum rekka (rack): 72 grafíkörgjörvar (GPU), 36 miðörgjörvar (CPU) og 20,7 terabæti af hraðvirku minni. Slík vél er smíðuð fyrir ályktun (inference), það er vinnuna sem fer fram þegar mállíkan svarar notanda. Verðið er ekki gefið upp opinberlega. Fréttir frá í vor nefndu 5 til 7 milljónir dollara á vél og í maí mat Morgan Stanley kostnað stærstu kaupenda á um 7,8 milljónir, nærri tvöfalt verð fyrri kynslóðar. Á núverandi gengi eru það um 600 til 960 milljónir króna. Það er ekki allur kostnaðurinn. Það þarf gagnageymslur, netbúnað, vökvakælingu, húsnæði og varnir. Og eigi þetta að vera þjóðarinnviður dugar ekki ein vél. Þær þurfa að vera að minnsta kosti tvær og helst á tveimur stöðum. Gróft mat mitt á fyrsta alvöru áfanganum er því 2 til 4 milljarðar króna. Það mat er mitt og þeir sem kunna betur eiga að reikna það upp á nýtt. En berum það saman við töluna hér að framan. Miðað við höfðatölu er þetta innan við helmingur þess sem Bandaríkjamenn setja í gagnaverabyggingar einar á einu ári, og hér eru vélarnar taldar með. Hvað þarf mikið rafmagn? NVIDIA gefur aflþörfina ekki upp, en greinendur áætla 190 til 230 kílóvött á hvern rekka. Keyrð allan sólarhringinn notar ein vél því um tvær gígavattstundir á ári að kælingu meðtalinni, og tvær vélar um fjórar. Ísland notar um 20 þúsund gígavattstundir á ári. Við erum að tala um einn fimmþúsundasta hluta af raforkunotkun landsins, eða um hálft megavatt af afli. Gagnaverið sem kynnt var á Bakka í september á að taka hundrað megavött. Hér verð ég að vera heiðarlegur um tvennt. Tvær vélar gera Ísland ekki að stórveldi í gervigreind. Stærstu gagnaver heims telja slíka rekka í þúsundum. Og virkjun endist í heila öld en örflögur úreldast á fáum árum. Þetta er því ekki eingreiðsla heldur rekstur sem þarf að endurnýja. Tilgangurinn er ekki að keppa við risana. Hann er að þjóðin eigi sjálf vélarafl til að keyra opin mállíkön á eigin gögnum, og að þekkingin á rekstrinum verði til hér heima. Heilinn, ekki skjalaskápurinn Vélin væri heilinn, ekki skjalaskápurinn. Persónuupplýsingar, sjúkragögn og gögn fyrirtækja og stjórnsýslu ættu heima í sérstöku dulkóðuðu gagnalagi með strangri auðkenningu og aðgangsstýringu. Enginn fengi sjálfkrafa aðgang að gögnum annarra. En reikniaflið gæti verið sameiginlegt. Sproti gæti fengið aðgang. Háskólanemi gæti fengið reikniafl til rannsókna. Lítið fyrirtæki gæti keyrt öfluga gervigreind án þess að senda trúnaðargögn úr landi. Ráðuneyti og sveitarfélög gætu byggt þjónustu á innlendum innviðum. Það er áhugaverðari framtíð en sú að Ísland verði eingöngu staðurinn þar sem aðrir kaupa rafmagn undir sínar vélar. Veita, ekki verslun Landsvirkjun skilaði um 287 milljóna dollara hagnaði af grunnrekstri árið 2025, um 35 milljörðum króna. Dýrari endinn á mati mínu er um tíundi hluti af hagnaði eins árs. Lögin standa heldur ekki í vegi. Samkvæmt 2. grein laga um Landsvirkjun er tilgangur fyrirtækisins að stunda starfsemi á orkusviði ásamt annarri starfsemi á sviði viðskipta og fjármála, samkvæmt ákvörðun stjórnar hverju sinni. Ég er ekki að leggja til að Landsvirkjun verði hugbúnaðarfyrirtæki eða reki íslenskt ChatGPT. Fyrirmyndin er veita, ekki verslun: reikniafl selt á gagnsæju verði, öllum á sömu kjörum, innan ríkisaðstoðarreglna EES. Á síðustu öld breyttum við fossum og jarðhita í rafmagn og byggðum á því nýjan iðnað. Á þessari öld getum við breytt broti af sama rafmagni í reikniafl, þekkingu og stafrænt fullveldi. Fullveldi snýst ekki um að eiga allt. Það snýst um að geta sagt nei, og sá sem á eigið reikniafl getur það. Mælikvarðinn minn er einfaldur: hversu mörg megavött af reikniafli verða á íslenskri grund í árslok 2027, og hver á þau? Hálft megavatt í eigu þjóðarinnar er lítið svar. En það er svar. Og það er ótrúlega lítið veðmál ef gervigreindin verður jafn mikilvægur innviður næstu áratuga og rafmagnið varð á síðustu öld. Höfundur er stofnandi Alvitur.is og starfar að þróun og stefnumótun á sviði gervigreindar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigvaldi Einarsson Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar