Sport

Sér­fræðingar skilja ekki landsliðsþjálfarann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fagnaði stigi í Tallinn í gær.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fagnaði stigi í Tallinn í gær. vísir/vilhelm

Besta sætið gerði upp landsleik Eistlands og Íslands í gær og reyndi að finna einhverja jákvæða punkta úr slökum leik íslenska liðsins.

Okkar menn náðu sér aldrei almennilega á strik í leiknum og frammistaðan olli vonbrigðum.

Liðið er þar með búið að tapa fjórum stigum úr leikjum sínum gegn Eistum og það getur verið dýrt spaug ef strákarnir ætla að eiga möguleika á því að komast bakdyramegin á EM.

Þrátt fyrir leikinn var landsliðsþjálfarinn, Arnar Gunnlaugsson, merkilega ánægður með þetta allt saman í leikslok. Sérfræðingar Sýnar Sports skilja ekki upplegg landsliðsins og hvert Arnar sé að fara með liðið. Besta sætið átti heldur ekki svör þar.

Lionel Messi felldi mörg tár er hann kvaddi argentínska landsliðið formlega í nótt. Á sama tíma stendur Cristiano Ronaldo í alls konar vandræðum með portúgalska liðinu.

Besta sætið er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×