Fótbolti

Ís­land að beygja út af bak­dyra­leiðinni á EM?

Sindri Sverrisson skrifar
Það gæti reynst Íslandi dýrkeypt að hafa bara náð í tvö stig í leikjunum við Eistland.
Það gæti reynst Íslandi dýrkeypt að hafa bara náð í tvö stig í leikjunum við Eistland. vísir/Anton

Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er efst í sínum riðli í C-deild Þjóðadeildarinnar, eftir fjóra leiki af sex. Jafnteflin gegn Eistlandi gætu hins vegar reynst dýrkeypt í baráttunni um sæti á EM 2028 og taldar eru minna en þriðjungslíkur á að Ísland verði með á mótinu sem fram fer í Englandi, Wales, Skotlandi og Írlandi.

Með því að vinna sinn riðil í C-deildinni kemst Ísland upp í B-deild Þjóðadeildarinnar fyrir næstu leiktíð. En keppnin hefur líka áhrif á næsta stórmót, EM, og það er kannski það sem er mikilvægara í hugum margra.

Fótboltatölfræðiveitan Football Meets Data metur núna líkur Íslands á að komast á EM 2028 sem 29%. Alls komast 24 þjóðir inn á mótið og eru tvö sæti frátekin fyrir gestgjafana fjóra ef á þarf að halda.

Undankeppni EM fer fram á næsta ári og verður dregið í riðla í desember. Með því að vinna sinn riðil í C-deild Þjóðadeildarinnar tryggir Ísland sér sæti í 3. styrkleikaflokki í drættinum sem gæti reynst dýrmætt fyrir undankeppnina. Í henni verður svo spilað í 12 riðlum, með 4-5 liðum, og komast sigurliðin 12 inn á EM auk 8 af bestu liðunum í 2. sæti.

Hin 4 liðin sem lenda í 2. sæti fara í umspil og í það umspil bætast á bilinu 4-9 lið úr Þjóðadeildinni (það veltur á árangri gestgjafanna eins og útskýrt verður nánar hér að neðan). Ef Ísland kemst ekki beint á EM þá er ljóst að liðið vill vera í þessum hópi.

Ísland núna fyrir neðan hin toppliðin í C-deild

En hvernig fengi Ísland þá eitt af þessum sætum í EM-umspilið, ef á þyrfti að halda eftir að liðið næði ekki 1. eða 2. sæti síns riðils í undankeppninni á næsta ári?

Liðin sem vinna sinn riðil í Þjóðadeildinni eiga sem sagt möguleika á að komast „bakdyramegin“ inn á Evrópumótið í gegnum umspil í mars 2028, rétt fyrir mótið. Þau munu ekki þurfa þennan möguleika ef þau komast beint á EM í gegnum undankeppnina en það munu samtals 20 lið gera.

Sigurlið riðla í A- og B-deildum Þjóðadeildarinnar nú í haust, samtals 8 lið, verða alltaf á undan Íslandi í goggunarröðinni fyrir bakdyraleiðina en Ísland, takist liðinu að vinna sinn riðil, færist svo framar með hverju liði sem kemst á EM í gegnum undankeppnina á næsta ári.

Eins og staðan er núna er Ísland hins vegar líka fyrir aftan hin þrjú toppliðin í C-deildinni í þessari goggunarröð. Svartfjallaland og Slóvakía eru með 10 stig hvort og Albanía 9 en Ísland aðeins með 8 stig fyrir síðustu tvær umferðirnar í nóvember.

Alls má því segja að núna séu 11 lið (4 úr A-deild, 4 úr B-deild, 3 úr C-deild) fyrir framan Ísland í „bakdyraleiðarröðinni“ en alveg ljóst að einhver þeirra og sennilega meirihlutinn munu detta út því þau komast beint á EM. Það veikir hins vegar stöðu Íslands mikið í þessum efnum ef liðið endar með slakasta árangur sigurliða í C-deildinni.

Íslandi veitir sennilega ekkert af því að vinna Lúxemborg og Búlgaríu aftur í nóvember.Getty/Alex Nicodim

Þrjár útgáfur af umspilinu mögulegar og því mismörg sæti í boði

Það sem flækir málin mikið er að vegna frátekinna sæta fyrir gestgjafa er ekki ljóst hvort það verða 4, 5, 6, 8 eða 9 sigurlið riðla í Þjóðadeildinni sem komast með þessum hætti í EM-umspilið.

Ef það verða bara 4 lið er því ljóst að staða Íslands er núna ansi viðkvæm í þessum efnum en hún væri líklega ágæt ef 8 eða 9 sigurlið riðla í Þjóðadeildinni enda á að fá sæti í umspilinu.

Þrjár mögulegar útfærslur á umspilinu koma til greina, eftir því hve margir gestgjafanna fjögurra komast beint á EM í gegnum undankeppnina. Munum að tvö sæti eru frátekin fyrir gestgjafa ef á þarf að halda og ef 3-4 gestgjafar komast ekki á EM í gegnum undankeppnina fá stigahæstu gestgjafarnir fráteknu sætin.

  • A) Ef gestgjafarnir þurfa að nota bæði fráteknu sætin fara 8 lið í umspil um síðustu 2 lausu sætin á EM. Þar af verða 4, 5 eða 6 sigurlið úr Þjóðadeildinni, eftir því hvort 0, 1 eða 2 gestgjafar fara í umspilið með því að lenda í 2. sæti í undankeppninni.
  • B) Ef gestgjafarnir nýta bara annað af fráteknu sætunum fara 12 lið í umspil um síðustu 3 lausu sætin á EM. Þar af vera 8 eða 9 sigurlið úr Þjóðadeildinni, eftir því hvort gestgjafi fer í umspilið með því að lenda í 2. sæti í undankeppninni.
  • C) Ef gestgjafarnir þurfa ekki nein af fráteknu sætunum fara 8 lið í umspil um síðustu 4 lausu sætin á EM. Þar af verða 4 sigurlið úr Þjóðadeildinni.

Eins og sjá má er því ómögulegt að svara því nákvæmlega hvaða árangur myndi duga til að Ísland væri öruggt um bakdyraleið inn í EM-umspilið en ljóst að hvert stig gæti skipt máli í leikjunum við Búlgaríu og Lúxemborg í nóvember. Svo væri auðvitað best að komast bara beint inn á EM í gegnum undankeppnina og þurfa ekkert umspil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×