Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Birgir Olgeirsson skrifar 7. október 2026 14:28 Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, kallaði fyrirhugað tekjuþak á Rúv „gerviþak“ í ræðu á Alþingi í dag. Vísir/Vilhem Tómas Þór Þórðarson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi fjölmiðlaáform Loga Einarssonar ráðherra harðlega á Alþingi í dag. Hann kallaði fyrirhugað tekjuþak á RÚV „gerviþak“ og sagði áformin ekki verða til þess að nýr sjónvarpsfréttatími kæmi til sögunnar.
Tómas kvaðst hafa starfað á fjölmiðlum í tuttugu ár. Honum þætti erfitt að sætta sig við að fá ekki lengur sjónvarpsfréttir klukkan hálfsjö á kvöldin, eftir að Sýn hætti útsendingu þeirra í lok ágúst. Hann rifjaði upp afgreiðslu Alþingis á lögum um stuðning við einkarekna fjölmiðla í vor. „Og svo eftir að við afgreiddum hér enn eina hengingarólina til íslenskra fjölmiðla í vor liðu 80 dagar þar til að það fór undir,“ sagði hann um sjónvarpsfréttir Sýnar. Frá afgreiðslu frumvarpsins í þingnefnd 12. júní til síðasta sjónvarpsfréttatímans 31. ágúst liðu 80 dagar. Alþingi samþykkti lögin 19. júní, 73 dögum fyrir síðasta fréttatímann. Sýn heldur áfram að flytja fréttir á Vísi og Bylgjunni. Tómas vék síðan að frétt Vísis um fyrirhugað 2,8 milljarða króna tekjuþak Rúv. Hann sagði tekjurnar aðeins einu sinni hafa farið yfir markið í samanburði síðustu fjögurra ára og kallaði þakið hluta af „hraðbankaáformum“ ráðherra. „Þetta er því í raun gerviþak,“ sagði Tómas. Hann taldi það breyta afar litlu um það sem hann kallaði „ryksugu Rúv á íslenskum auglýsingamarkaði“. Samanburður Vísis byggði á auglýsingatekjum sem ráðuneytið færði allar á verðlag maí 2026. Tekjur ársins 2022 voru þá þær einu sem fóru yfir 2,8 milljarða króna. Frumvarpið miðar hins vegar við tekjur af viðskiptaboðum, sem ná einnig til kostunar og vöruinnsetninga. Fari þær tekjur yfir markið yrði umframfjárhæðin dregin frá framlagi ríkisins til Rúv. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að framlagið lækki um fjárhæð sem nemur tíu prósentum af meðaltekjum af viðskiptaboðum síðustu fjögurra ára, hvort sem þakinu er náð eða ekki. Tómas sagði áformin í grunninn fela í sér 250 til 280 milljóna króna viðbótarstuðning við einkarekna fjölmiðla. Hann taldi slíkan stuðning geta orðið „bjargráð fyrir minni fjölmiðla“ en dygði ekki til að byggja upp stóran miðil. „Við munum aldrei undir þessum áformum fá annan sjónvarpsfréttatíma, aldrei aftur annan stóran fjölmiðil, og það er ekki gott,“ sagði hann. Tómas kallaði áformin „ekkert annað en sýndarmennsku“ og sagði þau lýsa skilningsgjá milli ráðuneytisins og íslenskra fjölmiðla.
Ríkisútvarpið Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Auglýsinga- og markaðsmál Fjölmiðlar Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira