Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kristján Már Unnarsson skrifar 8. október 2026 06:42 Vilhjálmur Þórðarson er einn fimm eigenda jarðarinnar Eiðis á Langanesi. Fjær sést í Heiðarfjall. Egill Aðalsteinsson Eigendur jarðarinnar Eiðis á Langanesi hafa í hálfa öld staðið í baráttu fyrir því að mengun eftir herstöðina á Heiðarfjalli verði hreinsuð upp. Á ýmsu hefur gengið, meðal annars varð ráðherra svo reiður vegna erindis þeirra að hann lét henda þeim út af ráðherraskrifstofunni. Þeir ætla samt ekki að gefast upp.
Það var árið 1970 sem Bandaríkjaher yfirgaf herstöðina á Heiðarfjalli eftir þrettán ára rekstur. Þeir tóku hins vegar ekki allt með sér. Rusli frá herstöðinni hafði einfaldlega verið sturtað fram af fjallinu og safnaðist það upp í hauga í hlíðinni ofan við íbúðarhúsið á jörðinni Eiði við Eiðisvatn. Íbúðarhúsið á Eiði er við rætur Heiðarfjalls. Ratsjárstöðin var efst á fjallinu til hægri.Egill Aðalsteinsson Jörðin er í eigu tveggja bræðrahópa, alls fimm einstaklinga. Þeirra á meðal er Vilhjálmur Þórðarson, fyrrverandi flugstjóri. Hann segir landeigendur hafa í hálfa öld staðið í baráttu fyrir því að hreinsað yrði til eftir herinn. „Já, þú sérð það. Síðan 1976,“ segir Vilhjálmur en hér í sjónvarpsviðtali Sýnar lýsir hann slag landeigendanna: „Og nú allt í einu svara þeir ekki bréfum frá okkur; hið opinbera eða þessar stofnanir sem Alþingi ákvað að tæki málið að sér og sæi um mat á því hvað það kostaði að hreinsa þetta.“ Vilhjálmur segir að þarna séu meðal annars efni sem fylgdu filmuupptökum á því sem birtist á ratsjárskjánum. „Framköllunarvökvi, til dæmis frá Kodak. Þarna eru umbúðir sem við sjáum að blása upp þarna. Þarna eru olíutunnur og svo voru sennilega grafnir þarna spennar. Fullir af PCB. Og allir þessir rafgeymar.“ Á Heiðarfjalli má enn sjá minjar eftir ratsjárstöðina sem bandaríski herinn starfrækti þar á árunum 1957 til 1970.Egill Aðalsteinsson Vilhjálmur segir landeigendur fyrst hafa fengið kanadíska aðila til að kanna mengunina. Þeir hafi rannsakað og annast hreinsun á yfir fjörutíu ratsjárstöðvum í Kanada. Kanadamennirnir hafi sagt Heiðarfjallið með því versta. „Sögðu að þetta væri ein af verstu stöðvunum sem þeir hefðu skoðað af þessum ratsjárstöðvum sem þeir hafa séð um að hreinsa eftir Ameríkana.“ Hann segir ríkið síðan hafa fengið norskt fyrirtæki til að rannsaka mengunina. „Þar kom fram ívið verri útkoma heldur en frá Kanadamönnunum. Því að þeir eru líka búnir að finna þarna geislavirk efni þarna uppi.“ Gömul mynd af herstöðinni á Heiðarfjalli.Langanesbyggð Vilhjálmur segir landeigendur hafa reynt málsókn en málinu hafi verið vísað frá og það sagt fyrnt. „Það er ekki fyrnt, þessir haugar eru þarna ennþá! Málið er ekkert fyrnt sko!“ -Þannig að þið ætlið að halda áfram? „Já, það er ekki um annað að gera fyrir okkur. Þetta kemur í veg fyrir það, sem við ætluðum að gera hér í upphafi, að vera með fiskeldi.“ Íbúðarhúsið á Eiði stendur við Eiðisvatn.Egill Aðalsteinsson „Við erum hætt að nota vatnið hérna því það er komið í ljós að í læknum hérna og lindinni er komið fram eiturefni. Þannig að ég verð að flytja allt vatn innan af Þórshöfn í brúsum til að hafa við húsið og drykkjarvatn. Svo er ríkið búið að setja upp hérna skilti um að það sé hættulegt að vera þarna á svæðinu. En svo aftur sveitarstjórnin er með auglýsingu hérna hinum megin um að hvetja fólk til að fara upp á fjall og skoða þetta,“ segir Vilhjálmur. Vilhjálmur bendir í átt að Heiðarfjalli frá hlaðinu á bænum Eiði.Egill Aðalsteinsson Viðræður við ráðamenn í gegnum áratugi segir hann litlu hafa skilað. „Og síðan er röðin af þessum ráðherrum sem við höfum talað við en ekkert kemur út úr því. Svo töluðum við við utanríkisráðherra, eins og Halldór Ásgrímsson. En hann varð bara reiður þegar við vorum að tala um þetta mál og lét henda okkur út af skrifstofunni fyrir rest,“ segir Vilhjálmur og hlær. Málið hefur í gegnum árin verið af og til rætt á Alþingi, síðast í fyrradag í umræðum um störf þingsins, þar sem þingmaður lýsti Heiðarfjalli sem einu alvarlegasta mengunarmáli Íslandssögunnar.
Langanesbyggð Umhverfismál NATO Bandaríkin Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Tengdar fréttir 50 ára úrgangur Bandaríkjahers verður þrifinn eftir langt stríð landeigenda Allt stefnir í að Íslendingar sjái sjálfir um að þrífa upp meira en hálfrar aldar gamlan úrgang eftir Bandaríkjaher í Heiðarfjalli í Langanesbyggð, sem hefur verið uppspretta deilna áratugum saman. 10. maí 2021 16:48 Leyniviðaukar ræddir á Alþingi Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði fyrir tæpu ári að Íslendingar hefðu EKKI gengist undir kvaðir sem losuðu Bandaríkjamenn undan ábyrgð á að hreinsa varnarsvæði á Íslandi. Síðan þá hafa komið fram leyniviðaukar, við varnarsamninginn frá 1951, sem segja aðra sögu. Utandagskrárumræða um viðaukana er fyrirhuguð á Alþingi um miðja viku. 28. janúar 2007 18:30 Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Margaret Hamilton er látin Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira
50 ára úrgangur Bandaríkjahers verður þrifinn eftir langt stríð landeigenda Allt stefnir í að Íslendingar sjái sjálfir um að þrífa upp meira en hálfrar aldar gamlan úrgang eftir Bandaríkjaher í Heiðarfjalli í Langanesbyggð, sem hefur verið uppspretta deilna áratugum saman. 10. maí 2021 16:48
Leyniviðaukar ræddir á Alþingi Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði fyrir tæpu ári að Íslendingar hefðu EKKI gengist undir kvaðir sem losuðu Bandaríkjamenn undan ábyrgð á að hreinsa varnarsvæði á Íslandi. Síðan þá hafa komið fram leyniviðaukar, við varnarsamninginn frá 1951, sem segja aðra sögu. Utandagskrárumræða um viðaukana er fyrirhuguð á Alþingi um miðja viku. 28. janúar 2007 18:30