Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Agnar Már Másson skrifar 7. október 2026 19:22 Högni Alvar Harðarson Önnuson, formaður Orators, Kjartan Leifur Sigurðsson, laganemi og Magnús Hjaltason, gjaldkeri Orators við störf leigjendalínu Orators og Ölmu. Línan er opin á miðvikudögum. Aðsend Laganemar við Háskóla Íslands veita um þessar mundir ókeypis lögfræðiaðstoð auk þess sem þeir halda úti svokallaðri leigjendalínu. Formaður Orators segir starfið gefandi, enda frískandi að prófa eitthvað nýtt á milli þess sem menn sitja yfir bókum. Fólk hringi inn með alls konar vandamál; sumir kvarti vegna erfiðra leigusala og einn innhringjandi hafi haft samband þegar sambýliskonan reyndist vera gift öðrum manni.
Högni Alvar Harðarson Önnuson er formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, en hann útskýrir í samtali við Vísi að félagið bjóði um þessar mundir upp á endurgjaldslausa lögfræðiaðstoð í gegnum síma. „Þetta eru um þrjátíu laganemar með handleiðslu lögfræðinga frá þremur lögmannsstofum sem svara spurningum,“ segir Högni en sjálfboðaliðar frá lögmannastofunum Mörkinni, Sævari Þór og félögum og Lögþingi eru laganemunum innan handar. Hann segir að símtölin séu eins fjölbreytt og þau eru mörg. „Þetta er oftast fólk sem þorir kannski ekkert endilega að taka skrefið að heyra í lögfræðingi eða lögmanni, kannski vegna þess að það heldur að það sé svo mikið vesen,“ segir hann. Þessi aðstoð er veitt alla fimmtudaga fram að jólaprófum í desember. Á miðvikudögum halda laganemarnir síðan úti svokallaðri leigjendalínu í samstarfi við Ölmu leigufélag þar sem leigjendur og leigusalar geta heyr í laganemum með sín vandamál. „Það getur verið allt frá einhverjum leigusamningi sem er eitthvað skrýtinn eða erfiðum leigusölum, bara alls konar,“ útskýrir Högni. Högni Alvar Harðarson Önnuson, formaður Orators.Aðsend Í tilkynningu til fréttastofu greindi Högni frá nokkrum dæmum um símtöl sem hafi borist. Einn hringjandi hafi haft samband við lögfræðiaðstoðina og sagst hafa komist óvart að því að sambýliskona hans væri gift öðrum manni. Hún hafi orðið ólétt og átt að eiga eftir tvær vikur en þegar þau hafi ætlað að fara til sýslumanns til að gifta sig saman hafi hann komist að því að hún væri gift öðrum manni Þá er einnig sagt frá öðru nýlegra dæmi, þegar einn hringjandi kvartaði yfir því að reykskynjarar á stúdentagörðum væru bilaðir þannig að þegar einn fór í gang í einni íbúð fóru þeir í gang í öllum íbúðum. Þá berast oft símtöl vegna almennt gallaðra fasteigna, leigusamninga eða erfiðra leigusala. Högni útskýrir að þegar slík símtöl berist sé almennt verklag að ráðfæra sig við lögmennina og síðan hafa samband við viðkomandi einhverjum mínútum síðar. Formaðurinn segir það verulega gefandi fyrir lögfræðinemana að fá að reyna við raundæmi á milli þess sem þeir sitji yfir bókum. „Algjörlega, þetta er æðislegt og fullkomið fyrir laganema sem vilja eiga við raunverulega ágreininga,“ segir hann. „Þetta er ekki bara það að lesa í bók.“
Lögmennska Háskólar Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Fleiri fréttir Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Sjá meira