Innlent

Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna

Árni Sæberg skrifar
Friðarsúlan var vígð árið 2007.
Friðarsúlan var vígð árið 2007. Vísir/Vilhelm

Friðarsúlan, listaverk Yoko Ono í Viðey, verður tendruð í tuttugasta sinn klukkan 20 í kvöld. Frá því að fyrst var kveikt á verkinu árið 2007 hefur það kostað Listasafn Reykjavíkur rúmlega 96 milljónir króna. Þar er tekið tillit til fjórtán milljóna króna styrks sem listamaðurinn sjálfur, Reykjavíkurborg og Orkuveitan veittu vegna endurnýjunar búnaðar. Kostnaður hleypur því á um 110 milljónum króna.

Í tilefni af tendrun súlunnar býður Reykjavíkurborg upp á fjölbreytta og hátíðlega dagskrá með leiðsögnum, listasmiðju, tónlistarflutningi og ávarpi borgarstjóra. Farið er yfir dagskrána í frétt hér að neðan:

Í tilefni af yfirvofandi tendrun Friðarsúlunnar ákvað blaðamaður að ýta á eftir fyrirspurn sem fyrrverandi samstarfsmaður hans sendi Reykjavíkurborg í október í fyrra og varðaði rekstrarkostnað listaverksins. Svar við þeirri fyrirspurn barst ekki, þrátt fyrir ítrekun í nóvember í fyrra, fyrr en ýtt var á eftir henni í september síðastliðnum. Þá barst svar samdægurs.

Í svarinu segir að á tímabilinu 2007 til 2025 hafi 54,8 milljónum króna verið varið í perur, varahluti og annan efniskostnað. Aðkeypt vinna, svo sem rafvirkja, tæknimanna og verkfræðinga, hafi kostað 43,9 milljónir króna og rafmagn 11,7 milljónir króna.

Samtals gerir það kostnað upp á 96,4 milljónir króna á þeim 19 árum sem kveikt hefur verið á súlunni í nokkra mánuði, frá fæðingardegi Johns Lennon þann 9. október til dánardags hans þann 8. desember.

Í þeirri upphæð hefur styrkur upp á 14 milljónir króna verið dreginn frá en samkvæmt svarinu veittu Yoko Ono, Orkuveitan og Reykjavíkurborg styrkinn vegna endurnýjunar á búnaði árið 2024. Ekki er tiltekið hvernig styrkurinn skiptist milli veitendanna þriggja.

Heildarkostnaður við rekstur súlunnar nemur því um 110 milljónum króna á nítján árum, eða 5,8 milljónum króna á ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×