Fótbolti

Ís­lenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auð­vitað svekkjandi“

Sindri Sverrisson skrifar
Ívar Orri Kristjánsson dæmdi leik Samsunspor og Dynamo Kiev í Sambandsdeildinni fyrir tæpu ári. Hægt var að notast við myndbandsdómgæslu í þeim leik en hún er ekki til staðar í íslenska boltanum.
Ívar Orri Kristjánsson dæmdi leik Samsunspor og Dynamo Kiev í Sambandsdeildinni fyrir tæpu ári. Hægt var að notast við myndbandsdómgæslu í þeim leik en hún er ekki til staðar í íslenska boltanum. Getty/Veysel Altun

Þrátt fyrir mikinn fjölda landsleikja karla í Evrópu í nýafstaðinni landsleikjatörn voru engir íslenskir dómarar á ferðinni að þessu sinni, hvorki hjá A- né U21-landsliðum.

Þriggja vikna hléi í Bestu deild karla lauk nú um helgina. Í þessu hléi voru ekki bara langflestir leikmanna deildarinnar að bíða eftir leikjum því dómararnir hafa sömuleiðis allir þurft að bíða verkefnalausir.

„Þetta er auðvitað svekkjandi,“ segir Þóroddur Hjaltalín, dómarastjóri KSÍ, í samtali við Vísi.

Átti von á verkefni

„Ég er ekki sáttur. Við áttum alveg von á því að fá verkefni, hið minnsta U21-verkefni. Það kom ekki og þannig er það bara. Þetta er auðvitað mikið af leikjum en það er líka mikið af dómurum og mikil samkeppni.

Það er mjög svekkjandi að við skyldum ekki hafa fengið verkefni en það er lítið sem við getum gert við því annað en að halda áfram. Ég á von á því að við fáum spennandi verkefni seinna á þessu ári,“ segir Þóroddur.

Þóroddur Hjaltalín er sjálfur fyrrverandi dómari en starfar nú sem dómarastjóri hjá KSÍ.Vísir/Einar

Ef horft er til síðustu tólf mánaða þá dæmdu íslenskir dómarar landsleiki í lok mars sem og í október og nóvember í fyrra, í undankeppnum EM U21- og U19-landsliða karla.

Þá hafa þeir í sumar einnig dæmt í undankeppnum Meistaradeildar karla og kvenna og Sambandsdeildarinnar og má vænta verkefnis þar nú í haust.

Íslenska VAR-leysið eigi ekki að bitna á dómurum

En bitnar það á íslenskum dómurum að það skuli ekki vera VAR-dómgæsla í Bestu deildinni?

„Nei, ég held að það sé ekki að hafa áhrif á okkur ennþá. Það eru þau svör sem við fáum [frá UEFA]. Dómararnir okkar eru allir með þjálfun til að dæma VAR-leiki,“ segir Þóroddur og bendir á að Ívar Orri Kristjánsson hafi dæmt leik Samsunspor og Dynamo Kiev í Sambandsdeildinni fyrir tæpu ári.

Í þeim leik var íslenskur dómarakvartett en myndbandsdómararnir komu hins vegar frá Austurríki.

„Ég held að þessi staða [ekkert VAR í íslenska boltanum] hjálpi okkur vissulega ekki,“ segir Þóroddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×