Fótbolti

Svekkjandi tíu manna janftefli hjá Frey

Andri Broddason skrifar
Rosenborg var með leikinn í höndum sínum en missti hann frá sér.
Rosenborg var með leikinn í höndum sínum en missti hann frá sér. EPA/ELISABETTA BARACCHI

Rosenborg tók á móti Sandefjord í norsku úrvalsdeild karla í dag. Freyr Alexandersson þjálfar Rosenborg en liðin skildu jöfn eftir leik sem endaði 1-1 þar sem bæði lið léku manni færri.

Lærisveinar Freys byrjuðu leikinn vel og fengu vítaspyrnu nánast í fyrstu sókn leiksins. Amin Chiakha fór á vítapunktinn og skoraði örugglega úr vítinu eftir að hafa fiskað það sjálfur. Heimamenn héldu áfram að sækja þétt eftir markið en erfiðlega gekk að koma boltanum í netið.

Rosenborg hélt 1-0 forystu í hálfleik en staðan átti eftir að batna enn frekar fyrir heimamennina. Tobias Børkeeiet, leikmaður Sandefjord, braut harkalega af sér og fékk að launum sitt annað gula spjald.

Rosenborg var marki yfir og manni fleiri eftir að hafa verið betri aðilinn í leiknum og virtust lærisveinar Freys geta siglt sigrinum þægilega heim. Það reyndist þó ekki vera auðvelt því Rosenborg var aðeins manni fleiri í tíu mínútur þegar Ole Sælnes, leikmaður Rosenborg, fékk einnig að líta sitt annað gula spjald. 

Þrátt fyrir að aftur væri jafnt í liðunum var Rosenborg enn sterkari aðili leiksins en síðasta áfall liðsins var ekki enn komið. Þegar um fimmtán mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma náði Vetle Egeli að jafna metin fyrir Sandefjord þvert gegn gangi leiksins. Leikmenn Rosenborg reyndu hvað þeir gátu til að ná sigurmarki í lokin en það dugði ekki til.

Eftir leikinn er Rosenborg í fimmta sæti norsku úrvalsdeildarinnar með 34 stig þegar liðið er búið að spila 22 leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×