„Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Kolbeinn Kristinsson skrifar 11. október 2026 21:49 Daði Berg Jónsson, leikmaður víkings, er búinn að lenda í leiðinlegum meiðslum. Diego/Vísir Daði Berg Jónsson kom inn af bekknum hjá Víkingi í 2-2 jafnteflinu gegn ÍA í Fossvoginum í kvöld. Hann fékk skýr skilaboð þegar hann kom inn á völlinn í stöðunni 2-2. „
Skilaboðin voru bara að fara inn og skora sigurmarkið. Mér fannst það liggja í loftinu. Tilfinningin mín úti á vellinum var sú að við værum að fara að stela þessu, en markið kom ekki og við lifum með því,“ sagði Daði eftir leik. Víkingar höfðu verið í nokkurra vikna pásu fyrir leikinn en Daði vildi ekki kenna ryði eða haustbrag um úrslitin. „Við æfðum vel. Það getur kannski verið erfitt að koma til baka eftir þriggja vikna pásu en við erum ekkert að pæla í því. Það er bara næsti leikur og við ætlum að klára þessa tvo leiki sem eftir eru með tveimur sigrum.“ Daði hefur glímt við meiðsli og fram undan er enn ein aðgerðin. Hann meiddist illa þegar hann ætlaði að leika með Vestra í fyrra og gekkst undir tvær aðgerðir síðasta vetur. „Ég kom til baka og spilaði í sumar og þetta átti alltaf að vera tímabil til að koma mér aftur í gang. Ég tek því allt sem gerðist hjá mér í sumar sem plús og horfi jákvætt á þetta.“ Áætlunin er að spila einn leik til viðbótar áður en hann fer undir hnífinn. „Planið er að spila næsta laugardag gegn Blikum og fara svo í aðgerð á mánudeginum. Þá tekur við tveggja til þriggja mánaða endurhæfing og svo er maður bara mættur aftur á völlinn.“ Markmiðið fyrir næsta tímabil er að gera það að sínu og halda fulla ferð áfram. „Það er klárlega stefnan. Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla bara að sýna það.“
Íslenski boltinn Fótbolti Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Segir félagið í skítnum Enski boltinn Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Sjá meira