Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar 12. október 2026 14:30 Nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar var samþykkt á síðasta bæjarstjórnarfundi og gildir til ársins 2040. Markmið þess er að Hafnarfjörður sé eftirsóknarverður staður til að búa og starfa í. Skipulagið byggir á tæplega fjögurra ára vinnu þar sem lögð var áhersla á gott samráð við íbúa og aðra hagaðila. Hvað er aðalskipulag? Aðalskipulagi er ætlað að veita heildstæða sýn á framtíðarþróun sveitarfélagsins hvað varðar áform sveitarfélagsins um landnotkun, umhverfisvernd og þróun byggðar. Þar koma fram megin leikreglur um hvað er leyfilegt á hverju svæði, t.d. íbúðabyggð, atvinnusvæði, græn og opin svæði, auk viðmiða um hámarksbyggingarmagn og hvar vegir, stígar, gönguleiðir og önnur samgöngumannvirki skuli liggja. Gildistími aðalskipulags er almennt um 15 ár. Endurskoðun þess fer fram reglulega og gefur tækifæri til að uppfæra stefnu sveitarfélagsins miðað við þróun um húsnæðisþörf, umferð, almenningssamgöngur o.fl. Helstu áherslur Við gerð aðalskipulagsins var lögð áhersla á að einfalda umgjörð sem stuðlar að sjálfbæru og fjölbreyttu samfélagi með öflugri þjónustu, þar sem fólkið nýtur lífsins í fallegri byggð milli hrauns og hafs. Helstu nýmæli Nýtt íbúðasvæði við Hamranes Samgöngumiðstöð á Tjarnarvöllum Borgarlína og Borgarlínustöðvar. Möguleika á jarðgöngum undir Setberg Slökkvistöð á Völlunum Nýr golfvöllur í Snókalöndum Nýr kirkjugarður fyrir duftker í Vatnshlíð Samþætting miðbæjar við Flensborgar- og Suðurhöfn Leiðigarðar sem byggja á áhættumati Veðurstofunnar vegna hraunvár Rafmagnslínur meðfram byggð fara í jörðu Íbúaþróun og húsnæði Gert er ráð fyrir að íbúar Hafnarfjarðar verði á bilinu 38.000–45.000 árið 2040, eða að fjölgun íbúa verði um 450-900 á ári. Til að mæta þessu gerir aðalskipulagið ráð fyrir að fullnýta byggingarsvæði, bæði ný svæði í Vatnshlíð og Hamranesi og umbreytingu atvinnuhúsalóða í íbúðarsvæði á Hraun-vestur og við Óseyrar- og Hvaleyrarbraut. Það er brýnt að búa í haginn og vinna að markmiðum aðalskipulagsins um fjölbreytt húsnæði sem mætir ólíkum þörfum íbúa á mismunandi aldri, ólíkum fjölskyldugerðum og með mismunandi tekjur. Því er nauðsynlegt að hefja sem fyrst vinnu við breytingu á vaxtarmörkum höfuðborgarsvæðisins nú þegar aðalskipulagið liggur fyrir. Samráð og athugasemdir Frá upphafi var lögð áhersla á að kalla eftir sem flestum sjónarmiðum. Vinnslutillaga aðalskipulagsins var auglýst haustið 2025, haldinn var kynningarfundur og vinnustofur sem voru vel sóttar. Fjölmargar athugasemdir bárust í ferlinu og auglýsta tillögu, sem er þakkarvert. Mikil vinna fór í að fara yfir þau sjónarmið sem þar komu fram. Flestar vörðuðu íbúðabyggð í Vatnshlíð, sem þótti of nálægt Hvaleyrarvatni sem var einnig í eldra aðalskipulagi. Athugasemdunum var mætt með því að færa svæðið fjær vatninu að vestanverðu og fækka um leið íbúðum á svæðinu. Með því móti ætti byggð ekki að sjást frá vatninu og ljós- og hljóðmengun að vera hverfandi. Það eru ávallt tímamót þegar endurskoðað aðalskipulag er samþykkt. Að baki er mikil vinna þar sem lögð var áhersla á samráð við íbúa. Til marks um það hefur verið þverpólitísk samstaða um vinnuna í skipulags- og byggingarráði, bæði á þessu og síðasta kjörtímabili, nema undir það síðasta þegar Miðflokkurinn sat hjá. Við getum verið stolt af nýju aðalskipulagi sem hefur að leiðarljósi velferð íbúa, sjálfbært og fjölbreytt samfélag á traustum grunni. Höfundur er varabæjarfulltrúi og fulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði í skipulags- og byggingaráði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Már Gunnlaugsson Hafnarfjörður Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun