Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar 13. október 2026 15:01 Undanfarið ár hef ég sett fram gagnrýni á fyrirlestrum og námskeiðum sem hefur vakið sterk viðbrögð: Eru kornvörur og baunir, til dæmis hafrarnir í hafragrautnum, endilega sú hollustuvara sem okkur hefur verið sagt? Fáum við í raun það úr þeim sem við höldum? Ég hef meira að segja fengið mótgreinar frá fagfólki fyrir að gagnrýna haframjólk. Það kom mér á óvart, því haframjólk á lítið skylt við hafragrautinn. Hún er að mestu vatn, höfrum er bætt út í og sterkjan brotin niður í sykur sem gerir drykkinn sætan. Ef við megum ekki einu sinni spyrja spurninga um slíka vöru er kominn tími til að opna augun, horfa gagnrýnum augum á staðreyndir og læra af þeim. Nú í október kom út alþjóðleg skýrsla, Hollow Harvests, frá bresku vísindasamtökunum Deep Science Ventures og Marc Leonard Trust. Hún dregur saman það sem rannsakendur hafa bent á í áratugi: Uppskeran hefur aukist en næringargildi nytjajurta hefur minnkað á sama tíma. Meiri matur, minni næring Árið 2004 birti dr. Donald Davis við Texas-háskóla rannsókn á gögnum bandaríska landbúnaðarráðuneytisins frá 1950 til 1999. Í 43 tegundum grænmetis hafði orðið marktæk lækkun á kalki, fosfóri, járni, C-vítamíni og próteini. Skýringin er kölluð þynningaráhrif: Þegar plöntur eru ræktaðar til að vaxa hratt og gefa mikla uppskeru heldur upptaka steinefna ekki í við vöxtinn. Næringarefnin dreifast á meira magn. Fleira kemur til. Aukið koltvíoxíð í andrúmsloftinu fær plöntur til að safna meiri kolvetnum en minna af próteini, sinki og járni. Mikil notkun tilbúins áburðar og stöðug ræktun skaða svo örverulífið í jarðveginum sem hjálpar rótunum að ná í steinefni. Þetta eru ekki jaðarkenningar. Þetta er vel þekkt í landbúnaðar- og næringarfræði. Eru kornvörur og baunir að sigla undir fölsku flaggi? Ég er ekki að segja að hafrar, annað korn eða baunir séu óholl. En gætu þau verið að sigla undir fölsku flaggi? Við borðum þau oft í góðri trú um að fá úr þeim járn, sink, magnesíum og prótein. Það er samt ekki víst að næringarefnin séu lengur til staðar í því magni sem við göngum út frá. Næringartöflur byggja margar á gömlum mælingum, á korni og baunum sem voru ræktuð í öðrum jarðvegi, við annað loftslag og af öðrum yrkjum. Rannsóknir sýna að aukið koltvíoxíð og aukinn landbúnaður geta dregið úr próteini, sinki og járni í þessum tegundum. Í sumum belgjurtum, til dæmis kjúklingabaunum, hefur mælst töluvert minna sink en áður. Fýtínsýra er geymsluform plöntunnar fyrir fosfór. Í meltingarveginum bindur hún hluta af járninu og sinkinu og líkaminn nær ekki að taka það upp. Hversu mikið tapast fer eftir því hve mikið er af fýtínsýru miðað við steinefnin. Dæmi: Ef korn inniheldur 10 einingar af sinki og fýtínsýran bindur 4 þeirra, nýtast 6. Ef sinkið fer niður í 7 en fýtínsýran er óbreytt og bindur áfram 4, nýtast bara 3. Sinkið minnkaði um 30% en það sem líkaminn nær að nýta minnkaði um helming. Við getum því borðað töluvert magn af þessum mat og samt fengið minna úr honum en við höldum. Þessar spurningar eru ekki árás á jurtaríkið. Ég vil einfaldlega að við skoðum gögnin eins og þau eru í dag en ekki eins og þau voru. Málið snertir líka íslenskan landbúnað Stór hluti kjarnfóðurs sem búfé er gefið hér á landi byggir á innfluttu korni. Ef kornið sem fóðrið byggir á inniheldur minna af steinefnum og próteini en reiknað er með hefur það áhrif á heilsu dýranna, á afurðirnar og að lokum á okkur. Fóðuráætlanir eru jafn góðar og tölurnar sem þær byggja á. Byrjum á rótinni Við lögum ekki vandamál sem við neitum að horfa á. Það er auðvelt að endurtaka að eitthvað sé hollt af því að það hefur alltaf verið sagt. Það er erfiðara, en mikilvægara, að spyrja hvort það sé enn satt. Með þessum skrifum vil ég fyrst og fremst hvetja fólk til að staldra við og vera gagnrýnið á heilsufullyrðingar, hvort sem þær koma af umbúðum, úr auglýsingum eða úr gömlum ráðleggingum. Matvæli breytast, jarðvegurinn breytist og ræktunin breytist. Það sem var hollt fyrir tuttugu árum er því miður ekki endilega jafn hollt í dag. En hvað getum við gert? Við getum aukið fjölbreytnina í stað þess að treysta á fáar hollustuvörur. Við getum valið minna unnin matvæli og spurt hvaðan maturinn kemur og hvernig hann er ræktaður. Við getum lagt korn og baunir í bleyti, látið þau spíra eða notað súrdeig, því það hjálpar líkamanum að nýta steinefnin betur. Og við getum stutt bændur sem leggja áherslu á heilbrigðan jarðveg, hvort sem það er í lífrænni ræktun eða annarri ræktun sem hugsar um jarðveginn. Spurningin er ekki bara hversu mikið við borðum heldur hvað við fáum í raun úr matnum. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elísabet Reynisdóttir Mest lesið Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvert í fjandanum erum við eiginlega komin sem samfélag? Steindór Þórarinsson Skoðun Hvað verður um störfin okkar? Auður Alfa Ólafsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Ríkisstjórnin ætlar að keyra ferðaþjónustufyrirtæki á Gullhringnum í gjaldþrot! Helgi Kjartansson,Ásta Stefánsdóttir Skoðun