Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar 13. október 2026 16:30 Fyrir nokkrum árum framkvæmdi OECD umfangsmikið mat á regluverki í byggingariðnaði og ferðaþjónustu á Íslandi og birti skýrslu um niðurstöðurnar í nóvember 2020. Markmiðið var að greina tækifæri til að efla samkeppnishæfni þessara atvinnugreina, einfalda regluverk og draga úr óþarfa hindrunum í rekstri fyrirtækja. Niðurstöður skýrslunnar voru athyglisverðar. OECD setti fram 438 tillögur til úrbóta, þar af 316 í byggingariðnaði og 122 í ferðaþjónustu. Í byggingariðnaði sneru tillögurnar meðal annars að einföldun skipulags- og byggingarleyfisferla, endurskoðun byggingarreglugerða, kröfum til byggingarvara og löggildingu starfsstétta. Í ferðaþjónustu beindust þær meðal annars að leyfisveitingum, reglum um gististaði og fólksflutninga, auk þess sem lagt var til að endurskoða rekstrarfyrirkomulag flugvalla og efla samkeppni í þjónustu á Keflavíkurflugvelli. Þá var ekki síður áhugavert að OECD áætlaði að innleiðing tillagnanna gæti skilað efnahagslegum ávinningi upp á rúmlega 200 milljónir evra á ári. Það nemur um 1% af vergri landsframleiðslu Íslands. Þetta eru umtalsverðar fjárhæðir og sýna hversu miklu máli skilvirkt regluverk getur skipt land og þjóð. Regluverkið má ekki verða hindrun Reglur eru nauðsynlegar til að tryggja öryggi, gæði og jafnræði, svo dæmi séu tekin. En þegar regluverk verður of flókið og íþyngjandi getur það aukið kostnað, hamlað nýsköpun og hagvexti og dregið úr samkeppnishæfni landsins. Sérstaklega þarf að gæta að svokallaðri gullhúðun, þegar stjórnvöld ganga lengra við innleiðingu EES-reglna en þörf krefur. Slíkar viðbótarkröfur geta aukið kostnað og flækjustig og því er mikilvægt að meta hvort ávinningurinn réttlæti þær. Í efnahagsskýrslu OECD frá júní 2025 var einmitt bent á að íslenskt regluverk væri að ýmsu leyti íþyngjandi og hamlaði framleiðni og samkeppni. Í nýlegri úttekt OECD frá apríl 2026 kemur síðan fram að þrátt fyrir þær umbætur sem hafa orðið á síðustu árum, meðal annars í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, séu aðgangshindranir nýrra fyrirtækja enn miklar. OECD leggur því áherslu á einfaldari leyfisveitingar og minni stjórnsýslubyrði. Hvar stöndum við í dag? Nú þegar tæp sex ár eru liðin frá útgáfu OECD-skýrslunnar frá 2020 er tímabært að skoða hvað hefur áunnist. Í vikunni sem leið lagði ég því fram skýrslubeiðnir á Alþingi ásamt níu öðrum þingmönnum þar sem óskað er eftir upplýsingum um stöðu innleiðingar úrbótatillagna OECD, hvað hefur verið gert, hvað hefur ekki verið gert og hvers vegna. Einnig er kallað eftir tímasettri áætlun um næstu skref og upplýsingum um hvort mælikvarðar og árangursmat séu til staðar sem sýna fram á áhrif innleiðingarinnar á samkeppnishæfni og efnahagslegan ávinning. Það er að mínu mati óásættanlegt að mikilvægar úttektir og hundruð tillagna til úrbóta liggi fyrir án þess að skýrt yfirlit um eftirfylgni og árangur sé aðgengilegt. Við þurfum ekki fleiri úttektir sem greina vandann. Við þurfum upplýsingar um hvað hefur verið gert til að leysa hann. Vönduð stjórnsýsla felst ekki aðeins í að setja reglur, heldur einnig í að endurskoða þær, fylgja umbótum eftir og sýna fram á árangur.Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggingariðnaður Ferðaþjónusta Mest lesið Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen Skoðun