Fótbolti

Hártogið og lætin kosta Vinicius El Clásico og alls fjóra leiki

Sindri Sverrisson skrifar
Vinicius fékk lengra bann en ella vegna hegðunar sinnar í garð dómarans þegar rauða spjaldið fór á loft.
Vinicius fékk lengra bann en ella vegna hegðunar sinnar í garð dómarans þegar rauða spjaldið fór á loft. Getty/Diego Souto

Vinicius Junior hefur verið úrskurðaður í fjögurra leikja bann eftir að hann kippti í hár mótherja í leik með Real Madrid í spænsku 1. deildinni um síðustu helgi. Hann missir því af El Clásico gegn Barcelona 25. október.

Vinicius var rekinn af velli í leik gegn Villarreal á laugardaginn eftir að hafa kippt í hár hins hárprúða Nathan Saliba. 

Aganefnd komst svo að þeirri niðurstöðu í dag að úrskurða hann í fjögurra leikja bann en þar af eru tveir leikir fyrir hártogið og aðrir tveir fyrir kröftug mótmæli við dómara leiksins.

Vinicius mun ekki geta spilað í spænsku deildinni að nýju fyrr en eftir næsta landsleikjahlé, eða eftir 20. nóvember. Hann missir af leiknum við Real Madrid og leikjum við Sevilla, Racing Santander og Valencia.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×