Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. október 2026 11:13 Þeir sem eru með ASOS-forritið í símanum fengu tilkynningu. Getty Tískurisinn ASOS biðlar til viðskiptavina sinna að vera á varðbergi gagnvart óvæntum skilaboðum eða símtölum sem sögð eru koma frá fyrirtækinu. Notendur fengu senda meldingu frá meintum tölvuþrjótum.
Þetta kemur fram í tölvupósti sem notendur ASOS hafa fengið sendan í vikunni. Þar biðjast forsvarsmenn fyrirtækisins afsökunar á óvissunni sem meldingin kann að hafa valdið. Íslenskir notendur voru meðal þeirra sem fengu skilaboð frá forriti ASOS frá meintum tölvuþrjótum. „Við komumst að því að óviðkomandi aðili komst inn á aðgang starfsmanns ASOS með því að villa á sér heimildir sem traustur tengiliður og afla sér þannig upplýsinga um innskráningu. Þær upplýsingar voru síðan notaðar til að nálgast upplýsingar um þriðja aðila sem ASOS notar,“ segir í tölvupóstinum til notenda. Lokað var tafarlaust á tölvuþrjótana og hafin ítarleg rannsókn með aðstoð netöryggissérfræðinga. Þar kom í ljós að tölvuþrjótarnir komust yfir nöfn og samskiptaupplýsingar viðskiptavinanna auk annarra ópersónulegra upplýsinga sem tengjast aðgöngum þeirra. Hins vegar komust tölvuþrjótarnir ekki yfir greiðslukortaupplýsingar né lykilorð aðganganna. Þá eru vefsíða og forrit ASOS örugg í notkun. Viðskiptavinirnir þurfa því ekki að grípa til neinna aðgerða en þurfa þó að vera á varðbergi gagnvart óvæntum skilaboðum eða símtölum. „Við munum aldrei biðja þig um að gefa upp lykilorð, öryggiskóða eða greiðsluupplýsingar í óumbeðnum skilaboðum eða símtölum,“ segir í tölvupóstinum. „Við vitum að viðskiptavinir okkar treysta okkur fyrir upplýsingum sínum. Við tökum þá ábyrgð alvarlega og höfum þegar gripið til frekari ráðstafana til að efla öryggiseftirlit enn frekar.“
Tölvuárásir Bretland Tíska og hönnun Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira