Skoðun

Gráðugir hótel­gestir sem borða raf­magn

Freyja Þórisdóttir skrifar

Gagnaverið At-north á Íslandi birti nýlega leikna auglýsingu um starfsemi sína, þar sem gagnaverum var líkt við hótel fyrir tölvur. Hótel At-North er samkvæmt henni, frábær og framsækinn vinnustaður fyrir ólíkar starfstéttir og störfin heilmörg. Enda í nógu að snúast við að sinna gestunum, tölvum sem þurfa að hafa það notalegt, kalt og þurrt, virkar tengingar og hæfilegt pláss. „Og gestirnir okkar borða rafmagn“, sagði talskona At-North.

Myndlíkingin um tölvurnar sem hótelgesti er mjög góð. En þvílíkir gestir og þvílíkt át. Eitt gagnaver getur étið rafmagn á við allan almenning í landinu. Þau eru líka drykkfelld, plássfrek, valda ónæði og eru frek á náttúruna á ýmsan hátt. Nú er í bígerð að reisa nýtt gagnaver á Bakka við Húsavík, sem borðar lítil 120 mw. Það er orka sem jafnast á við uppsett afl vindorkuversins í Vaðöldu, þegar allar 28 túrbínurnar verða komnar upp.

Stjórnlaust og stefnulaust í Noregi

„Hvernig getið þið verið á móti gagnaverum þegar þið notið 40 slík á hverjum degi‘“ sagði forsætisráðherra Noregs í umræðum um gervigreindar/gagnaverabyltinguna í Noregi á dögunum. Samt óttast almenningur um náttúruna og hækkandi raforkuverð. Sumir norskir stjórnmálaflokkar vilja stöðva uppbygginguna. Aðrir vilja takmarkanir og krafist er stefnu strax.

Gríðarleg fjölgun gagnavera með tilheyrandi orkuvinnslu er því hitamál í Noregi. Samkvæmt Hagstofu Noregs (Statistisk sentralbyrå) voru fyrir mánuði 26 starfandi gagnaver í landinu og fjögur stór í byggingu. En hvorki meira né minna en 116 GAGNAVER bíða leyfis til uppsetningar. Kröfur um að láta staðar numið koma úr ólíkum áttum. Með þeim rökum að gagnaver séu orkusugur á þröngum markaði, valdi náttúruspjöllum, tæmi vatnsból, skapi fá störf og kalli á fleiri og stærri vindorkuver. Flest séu þau reiknivélar kínverskra og bandarískra tæknirisa, sem komi norsku samfélagi ekki að gagni. Nýleg skýrsla tækniráðs Noregs staðfestir afar takmarkaðan ávinning samfélagsins af rekstri gagnavera og finnsk skýrsla sýnir sömu niðurstöður. Gríðarleg andstaða er við gagnaverauppbyggingu á Bretlandseyjum og í Bandaríkjunum vilja menn gjarnan losna við þau til annarra landa. Hvað vill Ísland? Hvar eru okkar skýrslur?

Hvað viljum við með gagnaver á Íslandi?

Ríkisstjórnin vill fjölga gagnaverum á Íslandi og staðfestingu þess má finna í atvinnustefnu. En hvaða gögn og fyrir hverja? Gervigreindargagnaverin taka endalaust til sín. Það hlýtur að vera grundvallaratriði að gagnaver á Íslandi geymi samfélagslega mikilvæg gögn, og í forgangi séu gögn sem íslenska þjóðin þarf á að halda, en ekki bara hvað sem er. Á Íslandi er tilviljanakennt hvaða vitneskju við höfum um gagnaverin. Upplýsingar um þessa nýstárlegu hótelgesti eru helst í formi viljayfirlýsinga og fyrirtækjakynninga sem kallaðar eru fréttir. Yfirsýn yfir bókunarstöðu tölvuhótelanna fram í tímann er ekki öllum ljós og þaðan af síður vitum við hvað gagnaverin okkar eru að geyma eða reikna. Eru það Tik Tok myndbönd, klám, hernaðarupplýsingar, eða eitthvað sem skiptir okkur máli.

Við getum ekki skorast undan uppbyggingu á vettvangi gagnavera og gervigreindar. En að byggja upp stefnulaust, með því að taka við öllum þeim gagnaverum sem aðrir vilja ekki sjá hjá sér, er glórulaust. Við höfum víðtæka og vonda reynslu af því að byggja upp stefnulaust. Nægir að nefna sjókvíaeldið og loðdýraræktina, en margt annað mætti tína til. Það hefur alltaf verið varasamt að leyfa markaðnum einum að ráða stefnunni. Í þessu tilfelli er það stórhættulegt.

Ætli ég verði ekki bara að spyrja gervigreind í gagnaveri til þess að fá einhver svör um hvert stefnir hér á Íslandi í risabransa sem heimsbyggðin talar um á hverjum degi. Og verð ég einhverju nær? Af mörgu sem gagnlegt væri að fá svör við er: Hvað erum við til í að leggja á náttúruna fyrir þessa óseðjandi gesti og hvað er í lagi að virkja mikið fyrir gagnaversiðnaðinn? Getum við tryggt að gagnaver geymi gagnleg gögn? Hvernig samræmist óheft sala orku til gagnavera, orkuöryggi, orkuskiptum og sanngjörnu orkuverði til almennings? Náttúra Íslands á betra skilið en stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans.

Höfundur er framkvæmdastjóri Landverndar.




Skoðun

Sjá meira


×