Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Lovísa Arnardóttir skrifar 18. október 2026 07:30 Spáin gerir ráð fyrir þónokkurri uppsafnaðri úrkomu og leysingum á næstu sólarhringum. Mest í kringum jöklana en einnig á Sunnan- og Norðanverðum Vestfjörðum og Ströndum Veðurstofan Gul skriðuviðvörun hefur verið gefin út fyrir Strandir, Norðanverða Vestfirði og Sunnanverða Vestfirði en þar er mestu uppsafnaðri úrkomunni spáð. Tvær lægðir áttu að fara yfir landið um helgina, sú fyrri í gær og sú seinni í dag. Ekki er talin hætta í byggð en skriðuföll geta náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum.
Þessar lægðir munu bera með sér hlýtt loft og úrkomu og stuðla að leysingum. „Mestri uppsafnaðri úrkomu er spáð á vestan- og sunnanverðu landinu. Einkum má búast við mikilli úrkomu á Vestfjörðum, Snæfellsnesi og með suðurströndinni í grennd við jökla. Á sumum svæðum getur uppsöfnuð úrkoma orðið mjög mikil á tímabilinu, þó einkum í grennd við jökla,“ segir í viðvöruninni á vef Veðurstofunnar. Þar er bent á að í lægðinni á miðvikudag hafi einnig rignt töluvert og svo snjóað á láglendi á vestan- og norðanverðu landinu. Víða hafi snjó leyst á láglendi og upp í miðjar hlíðar, en enn sé snjór til fjalla, þó mismikill eftir landshlutum. Búast megi við að leysingar verði áberandi á vestan- og norðanverðu landinu fram á mánudag. Skriður og grjóthrun Á Vestfjörðum, Ströndum og Snæfellsnesi muni rigna ofan í snjóinn sem féll til fjalla. Við slíkar aðstæður geti jarðvegur orðið mettaður sem getur valdið skriðum eða grjóthruni. Því megi búast við vatnavöxtum og aukinni hættu á skriðuföllum. Skriðuföll geti náð að vegum og öðrum samgöngumannvirkjum með litlum sem engum fyrirvara og valdið röskun á umferð. Að svo stöddu er ekki talin vera hætta í byggð. „Ákveðið hefur verið að gefa út skriðuviðvörun vegna leysinga og úrkomu fyrir norðanverða Vestfirði og sunnanverða Vestfirði. Ekki er hægt að útiloka grjóthrun eða minni skriður í bröttum hlíðum utan svæðanna sem búið er að gefa út viðvörun fyrir ef staðbundin úrkoma gæti orðið mikil og leysingar kröftugar,“ segir að lokum. Almenningur er hvattur til að tilkynna skriðuvaktinni um skriður og grjóthrun. Hægt er að senda tilkynningu á netfangið skriduvakt@vedur.is eða nota rafrænt eyðublað fyrir tilkynningar um ofanflóð. Gott er að tilgreina nákvæma staðsetningu og hvenær skriðan eða grjóthrunið varð. Ef það er ekki vitað nægir að segja hvenær þess varð vart. Látið myndir fylgja ef kostur er. Skriðuvaktin fer yfir tilkynningarnar og reynir að staðfesta þær áður en þær eru færðar í ofanflóðagagnagrunn Veðurstofunnar.
Veður Færð á vegum Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Veður Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Sjá meira