Skoðun

Vef­síðan er dauð! Lengi lifi amma dreki!

Geir Sigurður Jónsson skrifar

Í áratugi hafa fyrirtæki byggt vefsíður til að laða að fólk, kynna vörur og leiða gesti að kaupum. Næsta kynslóð verslunar-internetsins er byggð fyrir erindreka (gervigreindar-agenta) sem finna upplýsingar, bera saman möguleika og ganga frá viðskiptum.

Erindrekinn sem á að kaupa búnað eða bóka þjónustu þarf fyrst og fremst skýr svör og vel skipulagt samskiptaviðmót í formi söludreka. Vel skipulagður söludreki sem getur svarað fyrirspurnum á vel skiljanlegu drekamáli er lykill af árangri. Þó kaupdrekar geti nú þegar tekið upp símann og klárað málið - eru falin verð, óljósar vörulýsingar og ferli sem krefjast símtals, hindranir sem fæla frá.

Samkeppnisforskot birgja felst í því hversu auðveldlega söludrekar geta metið fyrirspurnir, komið með tillögur, stungið upp á samlegðar- eða samkeppnisvörum, og gengið frá kaupum þegar allir aðilar eru orðnir sáttir.

Drekatraust verður lykilforsenda þessara viðskipta. Staðfesting á áreiðanleika upplýsinga og heimildum aðila til að ganga frá kaupum verður lykilatriði. Drekahópar munu myndast þar sem traust verður í hávegum haft og þeir munu spjalla sín á milli um hvað mætti betur fara og laga sig að óskum sinna allra bestu.

Vefsíður fyrir fólk munu áfram gegna takmörkuðu hlutverki við að veita innblástur, byggja upp vörumerki og skapa tengsl. Þær eru þó að missa stöðu sína sem inngangur að viðskiptum á netinu. Viðskiptavinur getur valið birgja og gengið frá kaupum í gegnum gervigreind án þess að sjá nokkurn tíma forsíðu vefsins. Verðmætasta stafræna eign fyrirtækis verður því hæfnin til að eiga viðskipti við erindreka sem mæta eldklárir á svæðið.

Höfundur er gervigreindarráðgjafi.




Skoðun

Sjá meira


×