Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar 19. október 2026 08:15 Réttir á Íslandi sem lifandi nýsteinaldararfur -kosmísk dagatöl í laginu eins og sólartákn- Á hverju hausti smala bændur búfénaði sínum í réttir og sortera. Réttirnar samanstanda af hringlaga hleðslu umluktri annarri ytri hleðslu sem greinist niður í dálka, innri hringurinn kallast almenningur en hólfin drættir. Ofan frá séð líkjast réttirnar sólartákni, með hring í miðjunni og geislum út frá sér. Oftar en ekki liggur hálfgerð renna að réttinni svo auðveldara sé að reka búfénaðinn á réttan stað. Fyrir flestum Íslendingum hafa réttir bara verið hefðbundinn hluti haustsins, fé smalað af fjalli, veislur haldnar og svo tekið slátur. Þessi hefð á sér samt sem áður töluvert eldri og víðfeðmari rætur en marga grunar. Rannsóknir fornleifafræðinga benda nefnilega til þess að þekktir staðir eins og Stonehenge í Bretlandi, steinmusterin á Möltu, Atlit-Yam undan ströndum Ísraels og Göbekli Tepe í Tyrklandi, svo fáein séu nefnd, hafi verið einskonar nýsteinaldar-réttir. Þangað hafi hjarðir dýra verið reknar, þeim skipt niður, skinn og kjöt unnið og veislur og mannamót haldin. Þessu til staðfestingar hafa fundist dýrabein og kerbrot í miklu magni. Nýjustu samsætugreiningar á dýratönnum við Durrington Walls -hringmannvirkið við hlið Stonehenge- sýna að þangað hafi svínum og nautgripum verið smalað um margra kílómetra leið, allt frá Wales og Skotlandi. Þeirri kenningu hefur verið velt upp að leiðin umhverfis Miðjarðarhafið hafi verið einskonar steinaldar „silkivegur“ hvar ættbálkar hittust á sólstöðum, slátruðu dýrum, blótuðu guði og réðu ráðum sínum. Sólin, tunglið og stjörnurnar hafi verið þeim einskonar kosmísk klukka og dagatal og þeir byggt steinhringina, réttirnar, til að endurspegla sólarárið, höfuðáttir, dýrahringinn og stjörnumerki. Einar Pálsson hélt því fram í 11 binda bókaflokki sínum Rætur íslenskrar menningar, að þeir heiðnu menn sem fyrstir settust að á Íslandi hefðu tekið með sér stjarnvísi, stærðfræði, byggingalist og trúarbrögð frá sínum indóevrópsku rótum í Indlandi, Persíu og Miðjarðarhafinu. Hann var sennilega fyrstur manna á Íslandi til að sjá hve mjög norræna goðafræðin kallast á við goðafræðina í indversku Vedunum. Þær Edda og Veda, kallast á yfir árþúsundin. Hér má til dæmis nefna hvernig hugmyndirnar um Rta á Sanskrít kallast á við Urði og örlögin í norrænni goðafræði og endurspegla þá fornu trú að til sé óhagganleg alheimsregla sem hvorki menn né guðir fái haggað. Varuna og Óðinn vinna leynt og ljóst að viðhaldi hinnar kosmísku reglu og beita stærðfræði, rúnum og stjörnufræði til að binda óreiðuna lögum og reglu sem menn og guðir geta svo fylgt. Þessi tenging himingeimsins og skipulags manna á jörðu niðri birtist skírast í goðsögum gömlu guðanna. Þar var slátrun dýra ekki einungis hagnýt aðgerð heldur miðlægur hluti þess að viðhalda reglu alheimsins. Í indversku Veda-ritunum er þessari hugmynd lýst með fórnarathöfnunum (Yajna). Samkvæmt þeim er alheimurinn búinn til úr líkama frumverunnar Purusha, sem guðirnir slátruðu og limuðu í sundur við upphaf tímans, til þess að skapa skipulag úr óreiðu. Með því að smala gripum á tiltekinn stað á sólstöðum og slátra þeim, voru mennirnir að endurtaka sköpunarsöguna, tryggja að sólin myndi áfram rísa og jörðin halda frjósemi sinni. Sama hugsun liggur að baki sköpunarsögu Eddukvæða. Þar er það frumjötninum Ými sem er slátrað af Óðni og bræðrum hans til að skapa heiminn, jörðin er hold hans, fjöllin beinin og himininn hauskúpan. Slátrun og blót voru jarðneskur ás sem tengdi hringrás lífs og dauða við hringrás stjarnanna. Steinhringirnir voru ekki aðeins réttir, heldur heilagt rými, dregið upp eftir máli himintunglanna, hvar jörðin og kosmósinn mættust. Einari Pálssyni reiknaðist svo til að þingstaðir Íslands og höfuðból pössuðu inn í risastóran heilagan hring sem nam nákvæmlega 216.000 íslenskum fetum í þvermál en það talnagildi taldi hann ríma við fornar mælingar dýrahrings stjörnufræðanna og píramídana á Gísa sléttunni. Goðar til forna hefðu skipulagt samfélagið og goðorðin 36 samkvæmt hinu gullna sniði fornaldar og þannig bundið jörðina lögum himinsins með mannvirkjum sínum, á sömu forsendum og fornaldarmenn reistu steinhringi sem réttir og notuðu til að mæla sér mót á sólstöðum, blóta guði og smala og slátra dýrum. Einar leitaðist í bókaflokki sínum við að beita heilagri geómetríu til að tengja saman rúm og tíma. Hringirnir táknuðu eilífðina og hjól ársins, með smölun og blóti sögðu Íslendingar sig í lög við guðina, að fornu og nýju. Einangrun Íslands úti í miðju Atlantshafi varð til þess að hér varðveittust mörg þúsund ára gamlir indóevrópskir siðir sem aftur geta varpað ljósi á fornleifarannsóknir í nútímanum og byggja undir þá kenningu Einars Pálssonar að skipulag mannvirkja til forna hafi gengið út á að samtvinna hversdagslegt líf, sláturtíð og hina æðstu himnesku reglu. Höfundur er rithöfundur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fornminjar Mest lesið Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun