Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar 19. október 2026 10:31 Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, skrifaði nýverið grein þar sem hún sakar ríkisstjórnina um að svíkja börn landsins. Tilefnið er breyting á fjármögnun eyrnamerkt innleiðingu farsældarlaganna. Hún segir Framsókn hafa byggt upp kerfi sem nú sé verið að rífa niður. Það er býsna djörf söguskoðun. Stóra loforðið sem stóðst ekki Hugmyndafræði farsældarlaganna er góð. Um það þarf ekki að deila. Börn eiga að fá rétta þjónustu á réttum tíma, kerfin eiga að vinna saman og fjölskyldur eiga ekki að þurfa að berjast fyrir sjálfsagðri aðstoð. En það er ekki hægt að tryggja snemmtæka þjónustu þegar úrræðin skortir og biðlistar eru margir mánuðir eða jafnvel ár. Í júní síðastliðnum birti Ríkisendurskoðun úttekt á innleiðingu farsældarlaganna. Niðurstöðurnar voru alvarlegar og sláandi. Innleiðing farsældarlaganna byggði á ófullnægjandi undirbúningi, óraunhæfu kostnaðar- og ávinningsmati og loforðum sem ekki var innistæða fyrir. Hvorki var gerð fullnægjandi greining á þörfum barna né kortlagt hvaða þjónustu og úrræði vantaði áður en lögin voru samþykkt. Þrátt fyrir að fjármunum hafi verið varið til innleiðingarinnar njóta um fjórfalt færri börn samþættrar þjónustu en gert var ráð fyrir og þau börn sem glíma við hvað alvarlegastan vanda hafa setið eftir. Þá skortir árangursmælikvarða og markvisst árangursmat. Í stuttu máli voru sett lög sem áttu að gjörbylta þjónustu við börn, án þess að tryggt væri að úrræðin væru til staðar, fjármögnunin byggði á raunhæfum forsendum eða hægt væri að mæla hvort börnin fengju í raun betri þjónustu. Þetta er niðurstaða sjálfstæðrar eftirlitsstofnunar Alþingis. Það sem átti að verða bylting í þjónustu við börn var innleitt án þess að fullnægjandi forsendur væru til staðar. Og hver fór með málaflokkinn þegar þessi grundvallarvinna átti að fara fram? Framsóknarflokkurinn. Það er ekki hægt að taka pólitískan heiður af því að setja lög en neita síðan að horfast í augu við ábyrgðina á því hvernig þau voru undirbyggð og hvernig þeim var hrint í framkvæmd. Meðferðarheimilið sem var opnað en ekki hægt að nota Sagan sýnir okkur að það hefur ekki truflað Lilju og hennar fólk að slá upp ófjármögnuðum og óraunhæfum loforðum. Sárasta dæmið er sennilega meðferðarheimilið Blönduhlíð. Þann 26. nóvember 2024, aðeins fjórum dögum fyrir alþingiskosningar, opnaði Ásmundur Einar Daðason, þáverandi barnamálaráðherra Framsóknarflokksins, nýtt meðferðarheimili fyrir börn í Mosfellsbæ. Opnunin var kynnt sem mikilvægt skref í að bæta þjónustu við börn með alvarlegan hegðunar- og fíknivanda. En það var einn hængur á. Meðferðarheimilið var ekki tilbúið til að taka á móti börnum. Nauðsynleg leyfi lágu ekki fyrir, brunaúttekt hafði ekki verið lokið og húsnæðið uppfyllti ekki þær kröfur sem gerðar voru til starfseminnar. Samt var haldin formleg opnun. Rétt fyrir kosningar. Síðar kom fram í fjölmiðlum að ríkið hefði greitt 750 þúsund krónur á mánuði í leigu fyrir húsnæðið, þótt ekki væri hægt að nýta það eins og til stóð og á sama tíma þurfti að leigja annað nothæft húsnæði fyrir starfsemina. Hugsum aðeins um þetta. Foreldrar barna í miklum vanda biðu eftir hjálp. Börn þurftu á sérhæfðri meðferð að halda. Ráðherra „opnaði“ nýtt úrræði og vakti vonir um að staðan væri að batna. En á bak við opnunarathöfnina var ekki tilbúið meðferðarúrræði. Það er erfitt að hugsa sér skýrara dæmi um muninn á pólitískri sýndarmennsku og raunverulegri þjónustu. Börn sem þurfa meðferð geta ekki nýtt sér fréttatilkynningar. Þau þurfa þjónustu sem er til staðar. Við erum að brjóta niður síló og búa til sterkan grunn til að byggja á Lilja Dögg hefur rétt fyrir sér um eitt grundvallaratriði: Það má ekki veikja snemmtækan stuðning við börn. Slíkt getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir börnin sjálf, fjölskyldur þeirra og samfélagið allt. Áhyggjur sveitarfélaga af fjármögnun þjónustunnar ber því að taka alvarlega. En umræðan verður að byggjast á heildarmyndinni. Ríkisendurskoðun bendir sérstaklega á að skortur á viðeigandi úrræðum hafi staðið í vegi fyrir því að markmið farsældarlaganna næðu fram að ganga. Það er einmitt þess vegna sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt áherslu á að styrkja raunverulega þjónustu við börn. Með samkomulagi ríkis og sveitarfélaga hefur þremur milljörðum króna á ári verið bætt við fjármögnun þjónustu á þriðja stigi. Um er að ræða þjónustu við börn sem glíma við alvarlegan og fjölþættan vanda og þurfa sérhæfðan stuðning. Jafnframt hefur bið eftir vistun á meðferðarheimilum á vegum stjórnvalda verið eytt, þótt áfram þurfi að vinna að því að tryggja nægilegt framboð og gæði úrræða. Þetta skiptir máli. Það skiptir líka máli að halda því til haga að sveitarfélög eiga, líkt og áður, að sjá um 1. og 2. stigs þjónustu. Í forsætisráðuneytinu hefur átt sér stað mikil vinna í þágu samþættrar þjónustu við börn með vímuefnavanda byggð á tillögum sem lagðar voru fram í mars síðastliðnum, ný barnaverndarlög fara fyrir þingið í annað sinn eftir að hafa verið stöðvuð í þinglokasamningum í vor, framkvæmdaáætlun fyrir farsældarlögin verður líka lögð fram í vetur. Þá er stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd að kryfja málaflokkinn með það fyrir augum að geta bent á hvað betur þarf að fara. Í samtölum við starfsfólk ráðuneytanna sem koma að málaflokknum hefur komið fram að samhæfingarvinnan úr forsætisráðuneytinu skili því að nú sé langþráð samstarf ólíkra aðila í þessum málaflokki loksins orðið að veruleika. Fjárlagafrumvarp ársins 2027 gerir ráð fyrir verulegri aukningu á framlögum til úrræða sem tengjast markmiðum farsældarlaganna. Þar er meðal annars verið að styrkja barnaverndarúrræði, þjónustu við börn með fjölþættan vanda og greiningarþjónustu. Við verðum að vita hvað skilar árangri Ein af alvarlegustu afleiðingum þess hvernig staðið var að innleiðingu farsældarlaganna er að við höfum ekki nægilega skýra mynd af því hvort kerfið skili þeim árangri sem því var ætlað að skila. Hversu mörg börn fá þá hjálp sem þau þurfa? Hversu lengi bíða þau? Hvaða úrræði virka og hver ekki? Hvernig eru gæði þjónustunnar og hvað verður um börnin sem falla á milli kerfa? Þetta eru spurningar sem skipta miklu máli og þess vegna lagði ég fram mjög ítarlega skýrslubeiðni á Alþingi um heildstæða kortlagningu á velferðarumhverfi barna og fjölskyldna þeirra. Nokkuð sem ríkisendurskoðandi benti á að hefði þurft að gerast áður en farsældarlögin voru innleidd. Alþingi hefur nú samþykkt beiðnina. Það er mjög mikilvægt að við skoðum árangur þjónustunnar óháð því hver veitir hana. Hvort sem um er að ræða ríkið, sveitarfélög eða aðra þjónustuveitendur þá verður að vera hægt að svara sömu grundvallarspurningunni: Er barnið að fá þá hjálp sem það þarf og skilar hún árangri? Börnin eiga betra skilið en pólitíska sögufölsun Það er auðvitað hlutverk stjórnarandstöðu að veita ríkisstjórninni aðhald. Og Framsóknarflokkurinn hefur fullan rétt á að gagnrýna ákvarðanir um hvort enn eigi að framlengja fjármagn til sveitarfélaga sem eyrnamerkt var innleiðingu á lögum sem voru sett fyrir 5 árum síðan. En flokkurinn getur ekki skrifað sjálfan sig út úr sögunni. Það var Framsókn sem leiddi innleiðingu laga sem Ríkisendurskoðun hefur nú sýnt fram á að var verulega ábótavant. Það var ráðherra Framsóknar sem opnaði meðferðarheimili rétt fyrir kosningar þótt það væri ekki tilbúið til notkunar. Og það var undir forystu Framsóknar sem væntingar voru skapaðar án þess að tryggt væri að þjónustan gæti staðið undir þeim. Þegar formaður flokksins stígur nú fram og talar eins og Framsókn hafi skilið eftir sig fullbúið og vel starfandi kerfi sem núverandi ríkisstjórn sé að rífa niður, verður að leiðrétta þá mynd. Við þurfum ekki fleiri stór orð um farsæld barna sem ekki standast skoðun. Foreldrar, börn og ungmenni eru að kalla eftir úrræðum sem virka, skýrri ábyrgð og mælanlegum árangri. Við þurfum stjórnmálafólk sem þorir að horfast í augu við það sem hefur mistekist, líka þegar það ber sjálft ábyrgðina. Við þurfum að sameinast um að tryggja farsæld barna með því að byggja upp þjónustuna, tryggja að úrræðin séu til staðar og láta verkin tala. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ása Berglind Hjálmarsdóttir Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skörum fram úr í skaðlegu skattaumhverfi Elliði Vignisson skrifar Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Arfurinn og réttur ríkisins til skattheimtu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Undir sömu stjörnu – ópera fyrir alla þjóðina Sævar Þór Halldórsson skrifar Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun Ísland á ekki að verða land gjaldhliða Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson skrifar Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar Skoðun Nýtum betur gagnreyndar aðferðir í skólum Skúli Helgason skrifar Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Sjá meira
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Skoðun Hvernig getum við dregið úr einmanaleika mæðra í fæðingarorlofi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Samfélagsbanki: Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Guðmundur D. Haraldsson,Sævar Finnbogason skrifar
Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir skrifar
Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman skrifar
Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun