Skoðun

Umskiptingar Flokks fólksins á Al­þingi

Júlíus Valsson skrifar

Í íslenskum þjóðsögum segir frá börnum sem huldufólk tók úr vöggu og skildi annað eftir í staðinn, líkt að sjá en ólíkt að eðli. Foreldrarnir áttuðu sig stundum ekki fyrr en barnið tók til máls. Kjósendur Flokks fólksins gætu kannast við tilfinninguna. Flokkurinn sem kom út úr Stjórnarráðinu talar allt öðruvísi um bókun 35 en sá sem bað um atkvæði þeirra fyrir kosningarnar 2024.

Villa og svimi

Þann 13. febrúar 2024 stóð Inga Sæland í pontu Alþingis og taldi fyrirhugaða forgangsreglu bókunar 35 brjóta gegn stjórnarskránni. Vildi Alþingi gera svo veigamikla breytingu á íslenskri stjórnskipun þyrfti að breyta stjórnarskránni fyrst. Hún vildi láta reyna á ágreininginn fyrir dómstólum og sakaði ríkisstjórnina um að leggjast kylliflöt og leyfa Brussel að valta yfir okkur.

Daginn eftir var afstaða flokksins áréttuð í viðtali á Útvarpi Sögu: Flokkur fólksins myndi hafna samþykkt bókunarinnar.

Nítján mánuðum síðar var Inga orðin ráðherra. Þegar Snorri Másson spurði hana á Alþingi, 22. september 2025, hvort hún væri enn sama sinnis fékk hann afdráttarlaust svar. Hún hefði gjörsamlega skipt um skoðun, verið í „villu og svima“ og sérfræðingar fengið hana til að „sjá ljósið“. Allt fyrir Þorgerði!

Nú vísaði hún til neytendaverndar og málaferla gegn bönkunum. Stjórnarskrárvandinn, sem áður hafði kallað á breytingu á sjálfri stjórnarskránni, fékk litla athygli í þeirri frásögn.

Það hlýtur að vera sérstök lýsing við stjórnarmyndunarborð.

Skoðunin óbreytt, stuðningurinn nýr

Eyjólfur Ármannsson
er lögfræðingur og hafði fært ítarleg rök gegn innleiðingunni. Í maí 2024 hvatti hann utanríkisráðherra á Alþingi til að hætta við frumvarpið. Í september sama ár sagði hann í viðtali á Útvarpi Sögu að fyrirhuguð breyting gengi gegn stjórnarskránni og krefðist stjórnarskrárbreytingar.

Síðan kom ríkisstjórnarmyndunin.

Þann 23. desember 2024, nýsestur í ráðherrastól, sagðist Eyjólfur ætla að styðja ríkisstjórnina í málinu og virða samkomulag stjórnarflokkanna. Fimm dögum síðar sagði hann samkvæmt viðtali mbl.is að skoðun sín hefði ekkert breyst, spurður hvort bókunin færi enn að hans mati gegn stjórnarskránni.

Þarna liggur sérstaða málsins. Inga sagðist hafa sannfærst um annað. Eyjólfur sagðist enn sömu skoðunar en ætlaði samt að styðja málið þó svo það brjóti á stjórnarskránni sem hann hefur svarið eið um að verja. Ráðherrastóllinn hafði meiri áhrif á fyrirhugaða atkvæðagreiðslu en lögfræðilega niðurstöðu.

Enn í febrúar 2025 lýsti hann þeirri skoðun að rétt væri að láta EFTA-dómstólinn útkljá ágreininginn. Í september vísaði hann hins vegar til þess að Hæstiréttur dæmdi um stjórnarskrársamræmi laga og ítrekaði stuðning sinn við ríkisstjórnina.

Samþykkjum fyrst

Þann 15. október síðastliðinn var Eyjólfur kominn lengra. Samkvæmt Morgunblaðinu taldi hann sjálfsagt að Alþingi samþykkti frumvarpið og síðan gæti málið farið fyrir Hæstarétt. Fullveldistúlkun réttarins gæti breyst með tímanum.

„Þetta er túlkunarregla, þetta er ekki fullveldisafsal,“ sagði ráðherrann.

Á tveimur árum hafði málflutningurinn færst frá nauðsyn stjórnarskrárbreytingar yfir í að samþykkt væri sjálfsögð og dómstólar gætu metið afleiðingarnar síðar.

Hæstiréttur er þó engin sjálfvirk yfirlestrardeild Alþingis. Til þarf dómsmál þar sem reynir á lögin. Þingmenn bera sjálfir ábyrgð á lagasetningu sinni og geta varla afgreitt eigin stjórnarskrárefasemdir með því að einhver annar muni hugsanlega taka þær fyrir síðar.

Eyjólfur vissi heldur ekki hvort ESA myndi afturkalla málshöfðun sína þótt frumvarpið yrði samþykkt. Samþykkja skyldi samt. Allt fyrir Þorgerði!

Flokkurinn sem kom til baka

Sigurjón Þórðarson hefur varið nýju stefnuna á Alþingi með þeim rökum að verið sé að tryggja fullnægjandi lagastoð eldri skuldbindinga. Það er gerólíkur málflutningur þeim sem formaður flokksins viðhafði fyrir kosningar. Allt fyrir Þorgerði!

ESA tilkynnti málshöfðun gegn Íslandi 30. september 2026. Þá hafði frumvarpið þegar verið endurflutt. Ekki verður því skýrt með þeirri tilkynningu hvers vegna flokkurinn snerist; stuðningurinn lá fyrir löngu áður.

Kjósendur mega spyrja hvað varð um afdráttarlausu andstöðuna sem þeim var boðin. Þeir kusu flokk sem taldi stjórnarskrárbreytingu nauðsynlega. Þeir fengu ráðherra sem telur samþykkt sjálfsagða og bíður þess að dómstólar taki hugsanlega við.

Í þjóðsögunum þurfti ýmis ráð til að losna við umskiptinga. Ef þingmenn og ráðherrar FF eru ekki umskiptingar þá eru þeir a.m.k gufuruglaðir. Í lýðræðisríki nægir kjörseðill. Kjósendur þurfa aðeins að muna hvaða flokki þeir töldu sig vera að greiða atkvæði síðast.

Höfundur er fullveldissinni.




Skoðun

Sjá meira


×