Innlent

Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði

Agnar Már Másson skrifar
Slökkvilið vinnur að reykræstingu að Norðurbakka.
Slökkvilið vinnur að reykræstingu að Norðurbakka. Aðsend

Slökkviliðsmenn slökktu í kvöld eld í verslunarhúsnæði við Norðurbakka í Hafnarfirði.

Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en búið sé að slökkva eldinn. Nú sé unnið að reykræstingu. 

Hann kveðst ekki vita í hverju hafi kviknað, né hvaða verslun um sé að ræða.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×