Innlent

Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víet­nam

Bjarki Sigurðsson skrifar
Edit undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni í gær.
Edit undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni í gær. Viðreisn

Edit Ómarsdóttir tók í gær sæti á Alþingi í fyrsta sinn. Hún skipaði 2. sæti á lista Viðreisnar í Norðausturkjördæmi í kosningunum 2024. Oddvitinn er í fríi í Víetnam. 

María Rut Kristinsdóttir, oddviti Viðreisnar í kjördæminu, hélt til Víetnam um helgina ásamt Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, formanni Viðreisnar og utanríkisráðherra, og Ingileif Friðriksdóttur, aðstoðarmanni Þorgerðar. María Rut og Ingileif eru hjón. 

María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir gengu í það heilaga sumar 2018. Þá var María Rut aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar á Alþingi en nú er hún þingmaður og Ingileif orðin aðstoðarmaður Þorgerðar.Vísir/Lýður

Tilefni ferðarinnar er undirritun fríverslunarsamnings EFTA-ríkjanna við Víetnam. María Rut er á eigin vegum í vinnuferð eiginkonunnar og tekur sér leyfi frá þingstörfum á meðan. 

Edit tók sæti hennar í gær og skrifaði undir drengskaparheit að stjórnarskránni. Edit er tölvunarfræðingur og búsett á Akranesi. Hún starfar hjá Símanum en hefur áður meðal annars starfað hjá Avania, Klak og Origo. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×