Sport

Luka Gasic frá í nokkrar vikur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gasic á hlíðarlínunni upp á Skaga í gær.
Gasic á hlíðarlínunni upp á Skaga í gær. Mynd/aðsend

Álftanes fór þægilega áfram í 16-liða úrslit VÍS-bikarsins í gærkvöldi þegar liðið sló út ÍA 95-73.

Sigurinn var nokkuð dýrkeyptur en Luka Gasic meiddist á öxl í leiknum. Gasic lenti í samstuði við Gojko Sudzum hjá Skagamönnum og hljóp sárkvalinn strax af velli.

Gasic reyndi að koma aftur inn á völlinn síðar í leiknum en það var stutt stopp. Leikmaðurinn fór í myndatöku í morgun á Landspítalanum og voru tíðindin þar betri en menn óttuðust. Um er að ræða tognun og búast Álftnesingar við því að hann verði frá keppni í fjórar til sex vikur.

Álftanes hefur byrjað af miklum krafti í Bónus-deildinni og unnið fyrstu tvo leikina sannfærandi. Leikmannahópur liðsins er feikisterkur og ætti liðið að ráða vel við fjarveru Gasic. Álftanes mætir Keflavík í stórleik umferðarinnar í Bónus-deildinni á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×