Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar 21. október 2026 16:02 Kristbjörg Þórisdóttir sérfræðingur í klínískri sálfræði spyr í skoðanagrein sinni „Ósýnilega fólkið“ á Vísi nýverið, hvort tækniframfarir séu farnar að grafa undan mannlegum tengslum og gera fólk ósýnilegt. Spurningin er tímabær og áhyggjurnar skiljanlegar. En þegar tækninni er stillt upp sem helsta ógnvaldinum er hætta á að okkur sjáist yfir það sem mestu ræður – hvernig við kjósum að skipuleggja samfélagið og hver fær að taka þær ákvarðanir. Ósýnilegt fólk er nefnilega ekki nýtt fyrirbæri. Fátækt, einangrun, fordómar og valdaleysi gerðu fólk ósýnilegt löngu fyrir tilkomu internets, snjallsíma og gervigreindar. Tæknin getur vissulega aukið slíka útilokun, en líka rofið hana. Hún getur veitt fólki sem býr fjarri öðrum, glímir við hreyfihömlun eða hefur takmarkaðan aðgang að menntun nýjar leiðir til þátttöku. Sama gildir um þau okkar sem notum önnur tungumál en íslensku til samskipta. Það skiptir því máli að greina á milli tækninnar sjálfrar og þeirra aðstæðna sem hún er notuð við. Við þurfum líka að greina á milli samskipta og tengsla. Stutt spjall við bankagjaldkera getur glatt einhvern, en slíkt tryggir hvorki vináttu né samfélagslega viðurkenningu. Að sama skapi getur manneskja búið ein, átt samskipti á netinu og lifað innihaldsríku félagslífi. Einvera er ekki endilega einmanaleiki. Og sýnileiki er ekki það sama og að vera metinn að verðleikum. Fólk getur verið í stöðugu sambandi við aðra, jafnvel fyrir allra augum á samfélagsmiðlum, án þess að nokkur hlusti í raun. Þegar við tölum um að fólki líði verr en áður þarf líka að gæta nákvæmni. Einmanaleiki og vanlíðan eru alvarleg viðfangsefni, en orsakasamhengi þeirra við tæknina er hvorki einfalt né hið sama fyrir alla. Sumir missa tengsl þegar tiltekin þjónusta færist yfir á skjámiðla; aðrir öðlast í fyrsta sinn aðgang að samfélagi, upplýsingum og rödd. Hvor reynslan fær að telja? Er pláss fyrir alla? Það er rétt að líkami okkar og taugakerfi mótuðust við aðrar aðstæður en þær sem nú ríkja. En þróunarsagan er ekki fyrirmæli um að hverfa aftur til fortíðar. Forvitni, sköpunargáfa, samvinna og aðlögunarhæfni eru ekki síður hluti mannlegs eðlis en þörfin fyrir öryggi og nánd. Við höfum alla tíð breytt umhverfi okkar með verkfærum, þekkingu og hugviti. Spurningin er ekki hvort við eigum að gera það, heldur hvernig. Bankar, pósthús og verslanir loka ekki afgreiðslustöðum sínum vegna þess að algrímið (reikniritið) hafi sjálfstætt ákveðið það. Ákvarðanirnar taka þau okkar sem fara með stjórn þeirra og ákveða hvernig tæknin er innleidd og hvaða þjónusta er tekin upp eða lögð niður. Sé hagkvæmni og hámarksarðsemi látin ráða öllu geta mannleg samskipti orðið að kostnaðarlið sem auðvelt þykir að strika út. Sama gildir um samfélagslega forgangsröðun í þjónustu stofnana ríkis og sveitarfélaga við almenning. Stjórnmálamenn kosnir af almenningi til löggjafar og framkvæmda bera þar mesta ábyrgð. Forgangsröðun er mannanna verk en ekki óhjákvæmileg afleiðing tækniframfara. Þar liggur ábyrgðin — og einnig möguleikinn á breytingum til hins betra. En fátt er svo með öllu illt að ei boði gott segir máltækið. Það gildir um tækniframfarir líka. Þannig getur t.d. gervigreind hjálpað okkur að bæta við þekkingu, örvað sköpun og veitt betri úrlausnir verkefna. Hún getur líka svarað af slíkri lipurð núorðið að okkur finnist á okkur hlustað. En svar frá kerfi er ekki hið sama og gagnkvæm mannleg umhyggja. Nýting tækninnar afsalar okkur ekki ábyrgðinni hvert á öðru. Kristbjörg hvetur okkur í sinni grein til góðvildar og jákvæðra tengsla við samferðafólk okkar. Undir það má heilshugar taka, en góðvild einstaklinga ein og sér getur ekki bætt upp samfélagsgerð sem útilokar fólk. Til þess þarf aðgengilega þjónustu, raunveruleg tækifæri til þátttöku og lýðræðislega stjórn á þeim ákvörðunum sem móta daglegt líf okkar. Við þurfum því hvorki að velja milli mannúðar og tækniframfara, hliðræns eða stafræns veruleika, né leita aftur til ímyndaðrar gullaldar eða sakleysis æsku vorrar. Við þurfum að spyrja hver hefur völdin, hver nýtur ávinningsins og hver situr eftir. Framfarir felast ekki eingöngu í því sem tæknin gerir mögulegt, heldur líka því sem við ákveðum að fórna ekki á altari gróðans. Andst æða ó sýnileika er ekki aðeins sýnileiki, heldur viðurkenning – að vera talin með, hafa r ö dd og skipta má li. Höfundur er listamaður á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ósýnilega fólkið Kristbjörg Þórisdóttir skrifar Skoðun Rammaáætlun: Tvær tillögur – tvenns konar vinnubrögð Katrín Helga Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar Skoðun Þegar tíminn skiptir öllu Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár í þjónustu samfélagsins Árni Hrannar Haraldsson skrifar Skoðun Þegar forstjórinn smíðar hugbúnaðinn sjálfur Ása Rún Björnsdóttir,Óttar Guðmundsson skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Sama krónutöluhækkun í fjárlagafrumvarpinu – gjörólíkt högg fyrir heimili Þorvaldur Daníelsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson Skoðun
Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Erna Ingibjörg Pálsdóttir Skoðun