Lífið

„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Judi Dench er löngu orðin ein ástsælasta leikkona heims og á hún sérstakan stað í hjarta margra Íslendinga.
Judi Dench er löngu orðin ein ástsælasta leikkona heims og á hún sérstakan stað í hjarta margra Íslendinga. EPA/Andy Rain

Judi Dench segir augnsjúkdóm sem hún er með gera það ómögulegt fyrir hana að stíga á svið eða að leika í kvikmyndum. Þá eigi hún mjög erfitt með að greina andlit.

Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kvikmyndir og þætti. Hún hefur átta sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, síðast árið 2021, og hlotið verðlaunin einu sinni. Það var fyrir besta leik í aukahlutverki árið 1998 fyrir Shakespeare in Love. 

Í viðtali við Breska ríkisútvarpið virðist Dench þó gefa í skyn að leiklistarferlinum sé lokið. Árið 2012 greindist hún með AMD sem er aldurstengd hrörnun í augnbotnum og er algengasta ástæða lögblindu á Íslandi. 

„Ég get ekki verið á sviði. Ég get ekki leikið í leikriti lengur. Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið lengur,“ segir Dench. 

Þegar hún er spurð beint út í hvort hún sé hætt þverneitar hún þó ávallt.

Judi Dench sló í gegn sem M í James Bond myndunum og var í kjölfarið gerð vaxstytta af henni sem er til sýnis á Madame Tussauds. Getty/Eamonn McCormack

Þá eigi hún erfitt með að greina andlit og viðurkenndi hún að hún eigi það til að ganga upp að fólki sem hún telur sig þekkja og reyna að knúsa það áður en hún fattar að hún þekki fólkið ekki neitt. 

Dench steig síðast á svið árið 2015, lék síðast í kvikmynd í fullri lengd árið 2022 og í sjónvarpsþætti árið 2016. Hún hefur þó verið til viðtals í fjölda heimildamynda og -þátta síðustu ár og í dag kom út ævisaga hennar Is It Too Late to Make a Run for It. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.