Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 22. október 2026 11:32 Konan er vistuð í fangelsinu á Hólmsheiði. vísir/vilhelm Umboðsmaður Alþingis vildi ekki taka fyrir kvörtun fanga á Hólmsheiði sem hefur ekki fengið úthlutaðan fangaklefa heldur er vistaður í annars konar klefum. Fanginn hafi ekki leitað allra ráða.
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavélaklefa og/eða einangrunarklefa í stað þess að vera úthlutað fangaklefa í fangelsinu. Hún hafi leitað til Fangelsismálastofnunar vegna málsins og hafi erindum hennar ekki verið svarað. Þar með hafi hún ekki fengið formlega afstöðu stofnunarinnar og ekki getað nýtt sér kæruheimild til dómsmálaráðuneytisins. Í svari umboðsmannsins sem hefur verið birt á síðu hans segir að ekki sé gert ráð fyrir því að umboðsmaður hafi afskipti af máli áður en æðra stjórnvald hefur lokið umfjöllun sinni um málið. Konunni er bent á að bera málið undir dómsmálaráðuneytið, sem fer með fangelsismálin, áður en send er kvörtun til umboðsmannsins. „Með þessu hef ég þó enga afstöðu tekið til þess hver viðbrögð þess við erindinu ætti að vera. Fari [konan] þá leið og sé ósátt við viðbrögð ráðuneytisins, eða skort á þeim, getur hún leitað til mín á nýjan leik og verður þá tekin afstaða til þess hvort, og þá að hvaða marki, málið getur komið til athugunar af minni hálfu,“ segir í bréfi umboðsmannsins. Einnig er tekið fram að umboðsmaðurinn fari í sérstakar eftirlitsheimsóknir í fangelsin og verði kvörtun konunnar höfð til hliðsjónar. Fangelsið Hólmsheiði er gæsluvarðhalds- og móttökufangelsi með deild fyrir kvenfanga og aðstöðu fyrir afplánun styttri fangelsisrefsinga. Alls eru átta deildir, þar á meðal sérstakar kvennadeildir. Í fangelsinu eru 52 afplánunarpláss og fjögur gæsluvarðhaldspláss fyrir einangrun.
Umboðsmaður Alþingis Fangelsismál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent „Þetta er ákall“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fleiri fréttir Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fætinum Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Sjá meira