Innlent

Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Guðmundur Ingi opnaði sig um málið á Alþingi í gær.
Guðmundur Ingi opnaði sig um málið á Alþingi í gær. Vísir/Anton Brink

Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður og fyrrverandi ráðherra lét fjarlæga blett af fæti sínum fyrir tæpum mánuði sem hann segir að hafi reynst vera krabbamein. Hann segist hafa þurft að bíða í rúmt ár til þess að komast í leit hjá húðlækni.

Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfélagið allt sameinist í stuðningi og hluttekningu með fólki með krabbamein og aðstandendum þeirra.

„Nú er rétt tæpur mánuður síðan var tekinn blettur af fæti mínum sem reyndist vera krabbamein. Til þess að geta farið í þessa leit þurfti ég að bíða í rúmt ár. Mér skilst að þessi tími muni lengjast mikið. Ég var heppinn. Það sem reyndist vera hjá mér var krabbamein en í lottóinu þá vann ég vegna þess að þetta var staðbundið og hægt að taka það,“ segir Guðmundur Ingi.

„Hvers vegna var það komið? Jú, út af sólbekkjum, segja þeir, og sólarljósinu. Ef fólk brennur á það á hættu að lenda í þessari stöðu en þá er líka hætta á að fá sortuæxli sem er enn þá alvarlega. Þess vegna segi ég að við verðum að sjá til þess að biðtími verði styttur þannig að fólk sem þarf á þjónustu að halda geti virkilega farið og fengið þjónustu og þurfi ekki að bíða í ár eða tvö eða þrjú ár.“

Á vef Krabbameinsfélagsins kemur fram að húðkrabbamein leggist einkum á húðsvæði sem verða fyrir mikilli útfjólublárri geislun frá sólinni eða ljósabekkjum. Sortuæxli er alvarlegasta gerð húðkrabbameina sem er auðvelt að lækna greinist það á byrjunarstigi en getur verið erfitt við að eiga nái það að dreifa sér. Þar segir að til húðkrabbameina teljist ýmsar gerðir krabbameina, en aðallega er um að ræða þrjár gerðir, flöguþekjukrabbamein (carcinoma squamocellulare), grunnfrumukrabbamein (carcinoma basocellulare) og sortuæxli (melanoma malignum).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×