Sport

Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigur­vegari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Belgarnir Ivo Steyaert og Merijn Geerts deila heimsmetin.
Belgarnir Ivo Steyaert og Merijn Geerts deila heimsmetin. @bigdogbackyardultra

Belgarnir Ivo Steyaert og Merijn Geerts hættu báðir á sama tíma á heimsmeistaramótinu í bakgarðshlaupum og deila því bæði heimsmeistaratitlinum og heimsmetinu.

Þeir kláruðu 124 hringi og hlupu því alls 831,5 kílómetra þessa rúmu fimm sólarhringa.

Heimsmetið var áður 119 hringir og í eigu Ástralans Phil Gore en Belgarnir héldu áfram þrátt fyrir að hafa slegið það á 120. hring og engin önnur þjóð væri enn að hlaupa.

Það var þó enginn formlegur sigurvegari eins og venjan er því þeir hættu báðir á sama tíma.

Félagarnir urðu árið 2022 fyrstir til að klára hundrað hringi og árið 2024 hlupu þeir 110 hringi með félaga sínum Frank Gielen og hættu allir þrír á sama tíma. Þekkt saga frá því hlaupi var að Ivo týndist í skóhinu og Merijn fór til baka að leita að honum.

Bandaríkin eru heimsmeistarar í stigum þrátt fyrir að besti maður þeirra hafi bara klárað 107 hringi. Bandaríska landsliðið kláraði saman 1120 hringi og Belgarnir áttu ekki möguleika á því að ná því.

Þeir náðu ekki Áströlum því landslið þeirra kláraði 1069 hringi saman en ástralski meistarinn kláraði 87 hringi.

Belgíska landsliðið endaði með 1058 hringi samanlagt og þeir félagar hefðu þurft að klára fimm hringi í viðbót til að komast upp í annað sætið.

Heimsmeistaramót landsliða í Big Dog’s Backyard Ultra hófst laugardaginn 17. október en hvert landslið var með fimmtán hlaupara. Alls tóku 67 lönd þátt um allan heim eða alls 990 hlauparar.

Hlaupið í hverju landi fylgdi hefðbundnu bakgarðshlaupsfyrirkomulagi sem Gary Cantrell, einnig þekktur sem Laz og frægur fyrir Barkley-maraþonin, bjó til.

Á heila tímanum, á hverri klukkustund, leggja hlaupararnir af stað í 6,7 kílómetra hring, sem almennt er kallaður „yard“. Hlaupararnir halda áfram þar til þeir ná ekki að ljúka hring innan tímamarka eða geta ekki mætt á ráslínu fyrir næsta hring. Hlaupið heldur áfram þar til næstsíðasti keppandinn, eða „aðstoðarmaðurinn“, hættir og sá síðasti sem eftir stendur lýkur heilum hring einn síns liðs.

Samkvæmt reglunum er enginn sigurvegari ef síðustu tveir hlaupararnir hætta á lokahringnum. Þegar Geerts og Steyaert luku 124. hringnum saman og ákváðu að hefja ekki þann næsta var hvorugur þeirra því lýstur sigurvegari. Það skipti þó engu máli, því tvíeykið — og aðdáendur ekki síður — var himinlifandi með sameiginlegt met sitt í bakgarðshlaupi. Þeir eiga líka nú heimsmetið sem verður ekkert grín að slá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×