Afkoman yfir væntingum en horfurnar versna með hækkandi eldsneytisverði
Árangur af umfangsmiklum breytingum á rekstri Icelandair er þegar farinn að skila sér í ávinningi upp á nærri tuttugu milljarða á ársgrundvelli, að sögn stjórnenda flugfélagsins, sem segja undirliggjandi afkomu sterkari en nýjar uppgjörstölur gefa til kynna. Rekstrarhagnaður Icelandair var talsvert yfir væntingum sumra greinenda, en þrátt fyrir verulegan afkomubata á háannatíma flugfélagsins stefnir í mikið tap á síðustu mánuðum ársins vegna hækkandi eldsneytisverðs og sterkrar krónu.
Tengdar fréttir
Viðsnúningur í rekstri og kostnaðarlækkun „lífsnauðsynleg“ fyrir Icelandair
Lægra eldsneytisverð og sterkari sjóðstaða hjá Icelandair þýðir að horfur eru betri en áður, samkvæmt nýrri greiningu, en verðmatsgengi félagsins hefur verið hækkað og er eftir sem áður langt yfir verðlagningu á markaði. Rekstur Icelandair verður samt áfram erfiður samtímis mikilli fjárfestingarþörf en viðsnúningur og kostnaðarlækkun er sögð vera „lífsnauðsynleg“ fyrir flugfélagið.
Reksturinn batnar en hátt eldsneytisverð setur Icelandair þröngar skorður
Skýr merki eru um að undirliggjandi rekstur Icelandair sé að styrkjast, meðal annars vegna hærri fargjalda, betri sætanýtingar og umfangsmikilla hagræðingaraðgerða, að mati hlutabréfagreinanda, sem verðmetur félagið talsvert yfir markaðsgengi. Hátt eldsneytisverð, sterkt gengi krónunnar og kjaradeilur við flugstéttir setja rekstrinum hins vegar áfram þröngar skorður.