Fótbolti

Ás­dís Karen með tvennu í góðum sigri

Andri Broddason skrifar
asdis
aikfotbolldam

Ásdís Karen Halldórsdóttir var á skotskónum fyrir AIK þegar hún skoraði bæði mörk liðsins í 2-0 sigri á Rosengård í sænsku úrvalsdeild kvenna. Liðið náði með sigrinum að komast fyrir ofan Íslendingaliðið Kristianstad og er nú í fjórða sæti deildarinnar.

Ásdís Karen kom til AIK í sumar eftir stutt stopp á Íslandi þar sem hún spilaði nokkra leiki fyrir FH. Hún náði í dag að stimpla sig almennilega í liðið með frábærum mörkum. Fyrsta mark hennar kom eftir aðeins átján mínútna leik.

AIK var lengi aðeins með eins marks forystu og þurfti lítið til svo gestirnir frá Rosengård myndu jafna metin. Þegar aðeins ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma náði Ásdís Karen að skora annað mark sitt í leiknum og tryggði þannig tveggja marka sigur eftir góða sendingu frá varamanninum Dajan Hashemi Ghermezi.

AIK er nú einu sæti frá Evrópusæti en Malmö sem er í þriðja sætinu er með átta stiga forskot á AIK. Það er því mikið af stigum til að vinna upp ef liðið ætlar að ná því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×