Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Valur Páll Eiríksson skrifar 26. október 2026 08:03 Veigar Páll Alexandersson hefur verið lykilmaður í liði Njarðvíkur. vísir/Guðmundur Árs leikbann Veigars Páls Alexanderssonar var til umræðu í Bónus Körfuboltakvöldi á föstudagskvöld. Menn skiptust á skoðunum um bannið.
Veigar Páll féll á lyfjaprófi í úrslitakeppninni í apríl í fyrra eftir að ADHD-lyf, sem hann hafði ekki undanþágu fyrir, greindist í sýni hans. Hann hafði tekið lyf sem hann var ekki með lyfseðil fyrir í prófum við háskólann. Klippa: Bann Veigars til umræðu Efni sem eru á bannlista WADA og Lyfjaeftirlitsins eru í flestum ADHD-lyfjum en í vikunni kom loks niðurstaða sem beðið hafði verið frá því í vor. Veigar Páll var dæmdur í árs bann, líkt og hann greindi frá sjálfur á samfélagsmiðlum. Dómur yfir honum er ekki opinber enn, þar sem Veigar sjálfur, KKÍ og WADA hafa öll 21 dags frest til að áfrýja dómnum þar til hann verður gerður opinber. Ómar Sævarsson þekkir að falla á lyfjaprófi en hann drakk orkudrykk sem innihélt efni á bannlista og fór í bann árið 2013. „Þetta er örugglega búinn að vera hræðilegur tími fyrir þennan dreng. Þetta er búið að taka svo ótrúlega langan tíma og fólk að spyrja hann út í þetta. Þetta liggur á honum, þetta liggur á fjölskyldunni og öllum sem eru þarna í kring. Þannig að burtséð frá því hvað þetta er langt bann held ég að sé léttir að þetta sé komið út,“ segir Ómar í þættinum. Jón Halldór Eðvaldsson segir Veigar heppinn að fara ekki í lengra bann vegna málsins. „Ég veit ekki alveg hvernig maður á að horfa á þetta. Ég þekki fólkið hans. En hins vegar eru reglur í þessu. Það þarf að fylgja þessum reglum. Það skiptir engu máli þó það sé verið að greina mig, hvort ég sé með hjartasjúkdóm, sem ég hef lent í – á ég þá að fara að taka hjartalyf frá einhverjum sem ég þekki?“ spyr Jón Halldór. „Ég ætla ekki að setja mig í einhvern dómarastól en hann gerði eitthvað sem hann átti ekki að gera, alveg 100 prósent. Hann sagðist í yfirlýsingunni vera þakklátur fyrir stuttan dóm. Mér fannst hann heppinn. Hann hefði getað fengið fjögur ár,“ bætir Jón við. Umræðuna má sjá í spilaranum.
UMF Njarðvík Bónus-deild karla Körfuboltakvöld Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Fleiri fréttir Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Sjá meira