Innlent

Auka­fundur borgar­full­trúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu upp­sagna og niður­skurðar

Oddur Ævar Gunnarsson, Kjartan Kjartansson og Telma Tómasson skrifa
Skrafað er um framtíð tuga starfsmanna Reykjavíkurborgar á sérstökum aukafundi borgarráðs í dag. Það verður önnur stóra hrina uppsagna hjá borginni í borgarstjóratíð Hildar Björnsdóttur (t.h.). Myndin er úr safni.
Skrafað er um framtíð tuga starfsmanna Reykjavíkurborgar á sérstökum aukafundi borgarráðs í dag. Það verður önnur stóra hrina uppsagna hjá borginni í borgarstjóratíð Hildar Björnsdóttur (t.h.). Myndin er úr safni. Vísir

Aukafundur stendur nú yfir í ráðhúsi Reykjavíkur sem rætt er um uppsagnir á borgarstarfsmönnum og frekari hagræðingaraðgerðir. Tugir starfa eru undir samkvæmt heimildum fréttastofu.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá. Samkvæmt heimildum fréttastofu er umfjöllunarefni fundarins hagræðingaraðgerðir og uppsagnir starfsfólks. 

Niðurskurðurinn nær til allra sviða borgarinnar fyrir utan skóla- og frístundasviðs og velferðasviðs sem urðu fyrir hnífnum í sumar.

Ekki hafa fengist svör frá borgarstjórnarfulltrúum vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu verða ekki veitt viðtöl um málið fyrr en að loknum aðgerðum sem standa munu yfir í dag. 

Hátt í tuttugu manns var sagt upp hjá borginni í júní og tugum í ágúst. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri Reykjavíkur sagði í ítarlegu viðtali við fréttastofu í byrjun september að frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar væru fram undan hjá Reykjavíkurborg. 

Hildur nefndi sérstaklega að þjónustu- og nýsköpunarsvið borgarinnar væri mannafla- og fjárfrekt og að hægt væri að útvista verkefnum þess.


Tengdar fréttir

Fleiri upp­sagnir og óvissa um Borgar­línuna

Frekari uppsagnir og skipulagsbreytingar eru fram undan hjá Reykjavíkurborg. Sjóðir eru tómir og því gæti komið til frekari gjaldskrárhækkana. Framtíð samgöngusáttmálans veltur á því að ríkið standi við gefin loforð og óvissa ríkir um Borgarlínuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×