Sport

Fékk batakveðjur frá nem­endum móður hans

Andri Broddason skrifar
Jalen Hurts fékk góðar kveðjur á meðan hann er að jafna sig á blóðtappa.
Jalen Hurts fékk góðar kveðjur á meðan hann er að jafna sig á blóðtappa. Dylan Buell/Getty Images

Jalen Hurts, leikstjórnandi Philadelphia Eagles, greindist með blóðtappa og mun ekki spila meira á tímabilinu í NFL-deildinni. Það eru þó ýmsir aðilar sem hugsa fallega til hans á meðan hann er að jafna sig.

Pamela Hurts, móðir Jalen, er kennari og voru nemendur hennar þungt hugsi yfir því að Jalen Hurts gæti ekki spilað meira á tímabilinu. Nemendurnir útbjuggu hver og einn kort þar sem óskað var Hurts bata og komu með til móður hans.

Blóðtappi uppgötvaðist í kálfa Hurst þegar félagið fór til London og spilaði gegn Washington Commanders. Eftir leikinn fór hann í frekari rannsóknir þar sem kom í ljós að hann væri einnig með blóðtappa í lungunum.

Hurts er nú á blóðþynnandi lyfjum sem gerir það að verkum að hann má hvorki spila né æfa á meðan hann er á lyfjunum. Það er ekki auðvelt að þurfa að hætta þegar aðeins fimm vikur voru búnar af NFL-tímabilinu en það hlýtur að hjálpa að vita af því að það er hugsað fallega um mann.

Philadelphia Eagles hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir hvernig félagið fór með meiðsli Hurts. Honum var haldið vakandi í 36 klukkutíma fyrir leikinn gegn Commanders auk þess sem hann flaug aftur til Bandaríkjanna frá London með liðinu. Ekki er mælt með því að fólk með blóðtappa fari í flug milli landa.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×