Erlent

Kerfisvilla og mann­leg mis­tök leitt til slyssins

Freyja Þórisdóttir skrifar
Farþegi sem var í annarri lestinni segist aðeins hafa lifað af vegna þess að hann var í veitingavagninum ásamt samstarfsmanni þegar áreksturinn varð, er fram kemur á vef danska ríkisútvarpsins. Myndin er úr safni.
Farþegi sem var í annarri lestinni segist aðeins hafa lifað af vegna þess að hann var í veitingavagninum ásamt samstarfsmanni þegar áreksturinn varð, er fram kemur á vef danska ríkisútvarpsins. Myndin er úr safni. AP

Þriggja daga þjóðarsorg stendur yfir næstu þrjá daga í Andalúsíu en hið minnsta 68 manns létu lífið þegar tvær hraðlestir rákust á í morgun. Samgönguráðherra Spánar hefur greint frá því að tvennt hafi leitt til slyssins, fyrst kerfisvilla og því næst ákvörðun um að önnur lestin mætti keyra áfram þrátt fyrir að vera á rauðu.

Áreksturinn átti sér stað nærri bænum Urda í Toledo-héraði skömmu eftir klukkan níu að staðartíma í morgun. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu en alls voru 544 farþegar um borð í lestunum tveimur þegar áreksturinn varð.

Áfram á rauðu 

Þá voru 397 manns í lest ríkislestarfélagsins RENFE en 147 í hinni sem var á vegum IRYO, einkarekins fyrirtækis. Nú liggur fyrir að ákvörðun hafi verið tekin um að RENFE-lestin mætti keyra áfram á rauðu ljósi eftir að hafa stöðvast á teinunum í kjölfar kerfisvillu.

Alls hafi sex lestir staðið kyrrar vegna villunnar en Óscar Puente, samgönguráðherra Spánar, greindi frá því á blaðamannafundi að kerfisvillan hafi verið eitt af því sem leiddi til slyssins, er fram kemur í frétt The Guardian um málið.

Því næst hafi umferðarstjórnstöð tekið yfir og verið í samskiptum við lestarstjórana. Þá hafi verið tekin ákvörðun um að RENFE-lestin mætti halda áfram en Puente hefur sagt að fyrirmælin um að hefja lestarumferð á ný hefðu ekki átt að vera gefin. Sá sem tók endanlega ákvörðun um að hefja hana sætir nú rannsókn, skrifar The Guardian jafnframt.

Spænska þjóðin syrgir 

Þá var greint frá því í lifandi vakt danska ríkisútvarpsins að forseti héraðsins Castilla-La Mancha, Emiliano García-Page, hefði greint frá því að tala látinna hefði hækkað og í það minnsta 68 hefðu látið lífið í slysinu. Svo virðist sem vagn sjö í IRYO-lestinni hafi orðið verst úti í árekstrinum.

Á blaðamannafundi í morgun greindi forsætisráðherra Spánar, Pedro Sánchez, frá því að hann ætlaði að lýsa yfir þriggja daga þjóðarsorg vegna slyssins. 

„Spánn syrgir og umvefur fórnarlömbin; ríkisstjórn Spánar, og ríkið allt, stendur með fórnarlömbunum og fjölskyldum þeirra,“ er haft eftir honum í umfjöllun The Guardian en þjóðarsorgin stendur yfir frá því á morgun og þar til á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×