Handbolti

KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í marki KA í kvöld.
Ágúst Elí Björgvinsson var frábær í marki KA í kvöld. Vísir/Vilhelm

KA-menn sýndu styrk sinn í Olís deild karla í handbolta í kvöld með sex marka stórsigri á FH-ingum, 39-33, í Hafnafirðinum.

KA komst upp fyrir FH í töflunni með þessum flotta sigri en FH-ingar höfðu unnið þrjá síðustu leiki sína og aðeins tapað einu sinni í fyrstu sjö leikjunum.

KA hefur nú unnið Val, ÍBV, Aftureldingu og FH í síðustu fimm leikjum sínum og sent með því skilaboð til allra liða deildarinnar.

Það er þó þessi risasigur sem segir mest til um það að Akureyrarliðið sé mætt til að berjast á toppnum í vetur.

KA var 20-17 yfir í hálfleik og náði mest níu marka forskoti í seinni hálfleiknum, 35-26. Heimamenn í FH löguðu aðeins stöðuna en á endanum skildu sex mörk liðin að.

Dagur Árni Heimisson fór á kostum í liði KA og skoraði tólf mörk úr aðeins fimmtán skotum. Bjarni Ófeigur Valdimarsson var líka mjög öflugur með sjö mörk og sjö stoðsendingar og Arnór Ísak Haddsson nýtti öll fimm skotin sín. Dagur Gautason og Einar Birgir Stefansson bættu síðan báðir við fjórum mörkum.

Ágúst Elí Björgvinsson átti stórleik í marki KA og varði 21 skot, þar af tvö vítaköst.

Ómar Darri Sigurgeirsson var markahæstur hjá FH með sex mörk og sex stoðsendingar að auki. Leonharð Þorgeir Harðarson, Jón Bjarni Ólafsson og Brynjar Narfi Arndal skoruðu allir fimm mörk hver. Markverðir FH, Ólafur Rafn Gíslason og Jón Þórarinn Þorsteinsson, vörðu aðeins fjögur skot hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×