Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar 29. október 2026 07:45 Sem betur fer hafa orðið miklar framfarir í meðferð krabbameina og sífellt fleiri ná bata. Flestir sem teljast hafa lokið krabbameinsmeðferð lifa þó áfram með ákveðnum áhyggjum og óvissu, því krabbamein getur tekið sig upp aftur. Þessar tilfinningar verða oft mildari með tímanum, en sumum reynist erfitt að takast á við þær og upplifa jafnvel litla stjórn á eigin lífi. Ótti við endurkomu er kvíðatengdur vandi og getur, líkt og kvíði og þunglyndi, verið mismikill og náð frá sveiflukenndum, vægum einkennum yfir í langvarandi og alvarleg einkenni. Ótti við endurkomu krabbameins er ekki formleg greining en getur valdið einkennum sem líkjast kvíða og þunglyndi og geta skert lífsgæði þess sem hann upplifir. Mikill ótti við endurkomu einkennist af viðvarandi og ágengum hugsunum um að krabbameinið taki sig upp að nýju, óhóflegum áhyggjum og aukinni athygli og næmni fyrir líkamlegum einkennum. Einkennin geta verið hamlandi og valdið verulegri sálrænni vanlíðan eða skertri færni. Ótti er náttúrulegt viðbragð sem kviknar þegar við upplifum raunverulega eða ímyndaða líkamlega eða sálræna ógn eða hættu. Ótti getur hjálpað okkur að aðlagast og haldið okkur öruggum og með tímanum ætti hann að minnka, eftir því sem lengra er liðið frá meðferð og eftir því sem fólk fær oftar góðar fréttir í eftirlitinu eftir krabbamein. Hjá sumum þá virðist óttinn þó ekki minnka og þá á fólk erfitt með að finnast það vera öruggt og það getur valdið vanlíðan og haft áhrif á lífsgæði. Það geta verið ólíkar ástæður sem kveikja óttann hjá ólíkum einstaklingum en algengt er að fólk upplifi ótta þegar fara þarf á spítalann í rannsóknir og að fá niðurstöður. Það getur líka reynst fólki erfitt að heyra fréttir af öðrum sem eru að greinast, eða að finna fyrir nýjum óþægindum eða verk. Það hjálpar að tala við einhvern um óttann, hvort sem það er fagaðili, vinur eða fjölskyldumeðlimur. Þegar við tölum um vanlíðan okkar getur það hjálpað okkur að setja hlutina í samhengi og að hugsa skýrar. Því meiri áhyggjur sem við höfum af hlutunum, því verri virðast þeir, og þvígetur verið mikill léttir að segja hlutina upphátt. Það hjálpar líka að læra að endurmeta og takast á við hugsanir sem tengjast óttanum í stað þess að forðast þær og þar getur verið gott að tala við einhvern sem getur leiðbeint og gefið góð ráð. Sem aðstandandi getur verið gott að forðast að gefa of miklar ráðleggingar og ætla að leysa málin fyrir viðkomandi heldur getur fólk haft meiri þörf fyrir að það sé einfaldlega hlustað og gefið tækifæri til þess að setja óttann í orð. Einnig getur verið hjálplegt að skrifa niður hugsanir sínar tengdar óttanum, því það hjálpar oft til við að setja hlutina í samhengi. Það er algengt að fólk einangri sig þegar það upplifir vanlíðan, í stað þess að leita stuðnings. Þess vegna er mikilvægt að vita hvert hægt er að leita ef áhyggjur af því að meinið hafi tekið sig upp aftur gera vart við sig. Það er einnig mikilvægt að vita hvaða einkennum á að vera vakandi fyrir,og ekki síður mikilvægt að muna að það er eðlilegt að upplifa verki eða líkamleg óþægindi og ekki er þörf að hitta lækni í hvert skipti sem óþægindi gera vart við sig. Aukaverkanir krabbameinsmeðferða eru algeng og geta verið til staðar áfram eftir að meðferð lýkur. Það tekur oft tíma að treysta líkamanum aftur eftir alvarleg veikindi og þá hjálpar að huga að grunnþörfum á borð við svefn, næringu, hreyfingu og félagsleg tengsl, halda góðri rútínu og sinna hlutum sem veita okkur ánægju. Það er hins vegar algengt að fólk einangri sig þegar það upplifir vanlíðan, í stað þess að leita stuðnings. Hjá Krabbameinsfélaginu starfa félagsráðgjafar, hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar sem veita fólki sem fengið hefur krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning og ráðgjöf, þeim að kostnaðarlausu. Ásamt því að bjóða upp á hin ýmsu námskeið sem hjálpa fólki að aðlagast og takast á við veikindin. Á vefsíðu Krabbameinsfélagsins (Krabb.is) er hægt að fá nánari upplýsingar um þjónustuna. Höfundur er sálfræðingur og teymisstjóri hjá Krabbameinsfélaginu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Krabbamein Mest lesið Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun Skoðun Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Íris Helga Gígju Baldursdóttir skrifar Skoðun Til kall Drífa Snædal skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar má missa sín Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Atlaga að fátækt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason skrifar Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg pissar í skóinn sinn – og kallar það hagræðingu Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson skrifar
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks Skoðun
Starfsfólk Reykjavíkurborgar er ekki tilraunaverkefni Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir,Þorkell Heiðarsson Skoðun