Innlent

„Svo­lítið sárt í hjartanu að hafa enga söngva­keppni“

Smári Jökull Jónsson skrifar
Halla er í stjórn FÁSES en VÆB tók síðast þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision þegar keppnin fór fram í Basel í Sviss.
Halla er í stjórn FÁSES en VÆB tók síðast þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision þegar keppnin fór fram í Basel í Sviss. Vísir/Hulda Margrét

Yfirgnæfandi meirihluti er mótfallinn því að Ísland taki þátt í Eurovision verði Ísrael á meðal þátttökuþjóða, en þetta kemur fram í nýrri könnun Maskínu. Stjórnarkona í félagi áhugafólks um söngvakeppnina segir félagið ekki taka afstöðu í málinu en segir sárt að ekki sé haldin innlend söngvakeppni.

Samkvæmt könnun Maskínu finnst þremur fjórðu hlutum íslensku þjóðarinnar að Ísland ætti ekki að senda lag til keppninnar ef Ísrael verður á meðal þátttökuríkja. Könnunin var gerð dagana 2.–7. október og fengust svör frá rúmlega níu hundruð einstaklingum. 

74,6 prósent svöruðu spurningunni neitandi, um hvort Ísland ætti að taka þátt ef Ísrael verður með. Í gær var greint frá því að Ísland væri ekki á lista Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva yfir þátttökuþjóðir.

Er þetta örlítið hærra hlutfall en í könnun sem gerð var í desember í fyrra þegar spurt var um afstöðu fólks til ákvörðunar stjórnar RÚV að taka ekki þátt.

Hlutfall þeirra sem vilja að Ísland taki þátt er hæst í aldreinum 60-69 ára eða 36,4 prósent en lægst á meðal 18-29 ára en þar vilja 17,8 prósent aðspurðra að Ísland taki þátt þó Ísrael sé á meðal þátttökuríkja.

Halla Ingvarsdóttir, stjórnarkona í FÁSES, Félagi áhugafólks um Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, segir stjórn félagsins ekki taka afstöðu í málinu.

„Félagsmenn okkar hafa allavegana skoðanir á þessu máli, það bara má hver og einn hafa sína skoðun og við virðum það. Við erum ekki í sniðgöngu á þessu,“ sagði Halla í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar.

„Næstum óeðlilegt af hverju er ekki verið að tala um þetta“

FÁSES sé enn þá hluti af alþjóðlegum samtökum og úthluti meðal annars miðum til þeirra sem vilja upplifa Eurovision á staðnum. Hljóðið í áhugafólki í öðrum löndum sé misjafnt.

„Stundum er ekkert talað um þetta og bara haldið áfram á fullri ferð eins og ekkert sé. Svona næstum því óeðlilegt af hverju það er ekkert verið að tala um þetta. En í öðrum félögum, sem eru miklu færri, er þetta rætt og talið stórt mál,“ segir Halla og bætir við að ómögulegt sé að spá fyrir um hvort Ísland muni einhvern tíman taka þátt í Eurovision á ný.

Stjórn FÁSES sem kjörin var á aðalfundi þann 9. október.FÁSES

„Þetta er allt breytingum háð. Eurovision er 70 ára fyrirbæri og margir hafa ekki verið með lengi, maður veit aldrei.“

Sjálfri finnst henni ekki mjög sárt að Ísland sé ekki með en hins vegar sakni hún innlendu söngvakeppninnar.

„Hún þarf ekki að vera háð Eurovision og það er svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni. Okkur líður mjög mörgum þannig.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×