Skoðun

Nokkur orð um röflritun

Kristján Logason skrifar

Ég er ekki endilega viss um að framtíðarstarfsheiti forritara verði röflritari, enda myndi það kalla á gerbreytingu á þeirri skrifstofutísku sem hefur tröllriðið vinnustöðum undanfarin ár. En röflritun er vissulega í tísku núna.

Sumir myndu kannski halda að þingritari væri röflritari, en fyrir þá sem ekki vita hvað ég á við með röflritun þá er það mín þýðing á orðinu „vibe coding“. Röflritun er því það að tala við gervigreindarforrit þar til það hefur komið hugsunum þínum í eitthvert form. Og svo, þegar þér líkar ekki útkoman sem gervigreindin færir þér, þá röflar þú enn meira í henni. Þannig röflið þið saman, þú og gervigreindin, allt þar til gervigreindin er laus við skynvillur og færir þér útkomu sem nálgast það sem þú varst að hugsa.

Í nýlegum kynningum gervigreindarmógúla sást hvernig fólk talar við gervigreindina og gefur henni skipanir og hún færir því svör rétt eins og hún væri HAL 9000. Allt voðalega fínt og flott þar til tæknin klikkaði og hvorki gekk né rak.

Það er hætt við því að skvaldrið á vinnustað, þegar menn röflrita nýjustu forritin, verði til þess að hver og einn þurfi að fá einangraðan bás svo ekki verði eintóm froða úr öllu því röfli sem heyrist í opnu rými. Nógu erfitt á greindarskömmin með að skilja hinar ýmsu mállýskur, hvað þá að vita hvaða skipun kemur frá hverjum aðila, þannig að tal þriggja aðila við tölvuna orsaki ekki að skipanir hvers og eins þvælist fyrir hinum og útkoman verði forrit sem skilur hvorki upp né niður í einu né neinu.

Þegar ég byrjaði að skrifa þennan pistil var skilningur þeirrar gervigreindar sem ég reyndi að tala við á íslenskri mælskulist minni svo takmarkaður að röflið skilaði mér litlu öðru en útrás. Það gæti að vísu verið gott fyrir suma og ekki væri verra að einhverjir sem fara mikinn á fésbókinni myndu færa sig yfir í það að röfla bara við gervigreindina í staðinn. En þegar ég prófaði aftur fyrir birtingu tókst þetta merkilega vel. Ég þarf greinilega að hafa hraðar hendur við að koma röflinu mínu á prent áður en tæknin gerir það úrelt.

Að öllu gamni slepptu er það nokkuð alvarleg staða að röflritun geti varla farið fram með íslensku tali, þó svo gervigreindinni fari fram í skilningi. Það er hætt við því að íslenskri tungu og málnotkun hraki enn meira en áður þegar greindin neyðist til að hlusta á endalaust röfl á lélegri engilsaxnesku. Það getur þá einnig valdið því að öll vinna taki lengri tíma þegar þarf að margendurtaka röflið svo báðir aðilar skilji hvað snýr upp og hvað snýr niður.

LLM stendur fyrir large language model, sem þýða mætti sem málgreindarforrit. Málgreind er fín á ensku og kannski á öðrum tungumálum, en að reyna að tala við tölvuna á íslensku gefur verri útkomu en þegar ég tala við hundinn. Hann skilur talaða íslensku betur en málgreindin og eiginlega kötturinn líka.

Það hljómar nokkuð skrýtið að málgreind sem getur skrifað alveg ágætis íslensku og skilið hana í skrifuðu máli geti enn ekki notað hana í talmáli né tekið við upplýsingum eða tilskipunum í töluðu máli. Sökum þessa skilningsleysis málgreindarinnar hætti ég við að kaupa þjónustu frá fyrirtæki þegar í símanum tók á móti mér Tóti tölvukall sem skildi ekki neitt og gat því ekki selt mér þá þjónustu sem mig vantaði. Ekkert gekk að fá samband við einhvern af holdi og blóði.

Ef það er eitthvað í tengslum við gervigreind sem stjórnvöld og opinberir aðilar ættu að leggja höfuðáherslu á, þá er það sá möguleiki að fá tölvurnar til að skilja kjarngóða talaða íslensku. Það er reyndar til skammar að það hafi ekki verið lögð meiri áhersla á það mun fyrr, því til hefur verið alls konar tækni til þess arna og ekki hefur þurft málgreind eða greindargervi til þess.

Íslenskuskilningur gervigreindar og málkunnátta hennar getur ekki bara verndað tungumálið heldur aukið veg þess sem og bætt stöðu margra sem eiga í erfiðleikum með að eiga við tölvur og tól í dag vegna einhverrar líkamlegrar skerðingar, hvort sem er vegna hreyfi-, heyrnar- eða sjóngetu.

Það fylgja gervigreindinni bæði kostir og gallar, en það að geta röflritað gegnum málgreindina og þannig komið hugsunum sínum í orð, gert sig skiljanlegan eða forritað hjálpsamlegt forrit eða app án þess að hakka eins og spæta á lyklaborðið er ekki bara kostur heldur sumum alger nauðsyn til þess að geta þrifist í framtíðarsamfélagi.

Höfundur er ljósmyndari og röflritari.




Skoðun

Sjá meira


×